Loðna hefur lengi verið einn af mikilvægustu fiskistofnum landsins. Árin 2016-18 nam útflutningsverðmæti loðnu að meðaltali um 18 ma.kr. Aðeins útflutningsverðmæti þorsks var hærra, eða 95 ma.kr. Árið 2019 var engin loðna veidd en útflutningsverðmæti birgða nam ríflega 8 ma.kr. Þetta kemur fram í frétt sem birtist á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Enn hefur loðna ekki fundist í nægilegu magni til að veiðar verði leyfðar á nýju ári. Frekari loðnuleit verður í febrúar. Vonir standa til að loðna finnist en árið 2017 var kvótinn margfaldaður í kjölfar leitarleiðangurs í febrúar.
Sambærileg loðnuvertíð og árin 2016-18 myndi skila um 0,5 prósentum hærri hagvexti í ár en ella. Þær hagspár sem liggja til grundvallar fjárlögum 2020 gera ráð fyrir lítilli loðnuveiði. Verði aflabrestur má búast við að hagvaxtarhorfur gætu versnað um allt að 0,2-0,3% að öðru óbreyttu.
Talsverð staðbundin áhrif
Aukin fjölbreytni útflutningsvega og vöxtur hagkerfisins undanfarin ár og áratugi gera það að verkum að aflabrestur í loðnu hefur ekki sömu þýðingu í þjóðhagslegu samhengi og áður. Tekjur af loðnu dreifast hins vegar á fá fyrirtæki og sveitarfélög. Af því leiðir að aflabrestur getur haft talsverð staðbundin áhrif. Á það t.d. við í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjum en skip með skráða heimahöfn í þessum sveitarfélögum eiga meira en helming aflaheimilda í loðnu.
Ef gengið er út frá þeirri grófu nálgun að útflutningstekjur dreifist á byggðarlög í réttu hlutfalli við aflahlutdeild þá sést að tæplega 6 ma.kr. útflutningstekjur af loðnu má rekja til Vestmannaeyja og tæplega 5 ma.kr. til Fjarðabyggðar. Í þessu samhengi skiptir stærð sveitarfélags einnig máli því stærri sveitarfélög reiða sig gjarnan á fleiri atvinnugreinar en þau smærri og eru þar af leiðandi viðkvæmari fyrir sveiflum í afkomu greinanna. Á myndinni að neðan til hægri hefur útflutningsverðmæti loðnu verið deilt í tekjur sveitarfélaganna og sést þá mikilvægi veiðanna fyrir Vopnafjörð og Grenivík.
Umrædd sveitarfélög reiða sig þó á fleira en loðnuveiðar. Mörg þeirra eru t.a.m. umsvifamikil í makrílveiðum, en Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til að hámarksafli í makríl árið 2020 verði 922 þúsund tonn, sem er 20% aukning frá fyrra ári. Mikil sókn sjókvíaeldis vinnur einnig að einhverju leyti upp á móti aflabresti í loðnu á Austfjörðum. Áætlað er að útflutningsverðmæti eldisfisks hafi u.þ.b. tvöfaldast árið 2019 og numið um 25 mö.kr. Það er þar með orðið hærra en útflutningsverðmæti loðnu á undanförnum árum.
Á myndinni neðst til hægri hefur útflutningsverðmæti loðnu verið deilt í tekjur sveitarfélaganna. Miðað er við 18. ma.kr. útflutningsverðmæti og fjárhagsáætlun sveitarfélaga 2020.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.