Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Á myndinni eru Nökkvi Snær Óðinsson hjá samfélagslögreglunni, Kristján Þór Jónsson, forseti Kiwanisklúbbsins Helgafells, Birgir Sveinsson, formaður styrktarnefndar klúbbsins, og Erika Ýr Ómarsdóttir hjá samfélagslögreglunni.

Kiwanisklúbburinn Helgafell afhenti nýverið samfélagslögreglunni í Vestmannaeyjum styrk til kaupa á sýnileika- og kynningarbúnaði fyrir börn og ungmenni. Frá þessu greinir klúbburinn í tilkynningu.

Búnaðurinn verður nýttur í forvarnar- og fræðslustarfi samfélagslögreglunnar, meðal annars í heimsóknum í grunnskóla, leikskóla, Heimaey vinnu- og hæfingarstöð og íþróttafélög.

Fulltrúar samfélagslögreglunnar þökkuðu klúbbnum fyrir stuðninginn og sögðu styrkinn koma sér vel. Þörf hafi verið á að endurnýja búnað og varning sem eykur sýnileika og öryggi barna og ungmenna, einkum á dimmasta tíma ársins.

Styðja við verkefni í heimabyggð

Styrkurinn er liður í áratugalöngum stuðningi Helgafells við samfélagið í Vestmannaeyjum. Klúbburinn leggur sérstaka áherslu á verkefni sem stuðla að velferð barna, ungmenna og fjölskyldna.

Á undanförnum árum hefur klúbburinn meðal annars stutt við Heimaey vinnu- og hæfingarstöð, Bjargið á Hraunbúðum, Krabbavörn Vestmannaeyja og Hugarró. Hann hefur einnig stutt ýmis verkefni fyrir börn og unglinga, þar á meðal kaup á öryggisgleraugum fyrir börn.

Jólasælgætið á leið í hús

Á næstu vikum munu félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli ganga í hús í Vestmannaeyjum og selja jólasælgætisöskjur klúbbsins. Salan er eitt helsta fjáröflunarverkefni hans og rennur allur hagnaður af henni til góðgerðarmála og samfélagsverkefna í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í október
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudag
Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.