Arnór öflugur í tapi Karlskrona
Mynd/Aðsend.

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson var atkvæðamikill þegar Karlskrona tók á móti Önnered í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnór skoraði níu mörk og var markahæstur heimamanna. Hann gaf að auki þrjár stoðsendingar.

Önnered hafði betur í leiknum 31-34, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 16-16.

Arnór hefur verið öflugur í liði Karlskrona í vetur og er mikilvægur hluti af sóknarleik liðsins. Karlskrona hefur hins vegar átt erfitt uppdráttar í deildinni.

Karlskrona situr í 11. sæti deildarinnar með sjö stig eftir 11 leiki. Liðið hefur unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað sjö. Önnered er í 10. sæti með sjö stig eftir 12 leiki.

Nýjustu fréttir

Arnór öflugur í tapi Karlskrona
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar – varað við óhagstæðri spá
Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í október
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudag
Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.