Siglingar Herjólfs síðdegis í dag falla niður vegna veðurs og sjólags. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins til að færa bókun sína. Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga og óskað er eftir skilningi farþega.
Upplýsingar um siglingar á morgun, föstudag, verða gefnar út fyrir kl. 06:00 í fyrramálið.
Farþegar eru jafnframt minntir á að á þessum árstíma geti þurft að færa siglingar milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í annarri hvorri höfninni.