Tilkynning um skólahald - Ogłoszenie o zajęciach szkolnych

Skólahald í Grunnskóla Vestmannaeyja verður í formi fjarkennslu frá og með mánudeginum 23. mars nk. þar til tilkynnt verður um annað. Er þetta liður í hertum aðgerðum til að draga úr útbreiðslu COVID-19 þar sem ekki er hægt að manna hefðbundna kennslu, vegna sóttkví starfsmanna og m.v. þær fjöldatakmarkanir sem settar hafa verið í Eyjum. Fjarkennslustundir verða hjá hverjum árgangi  á sama tíma og kennslustundir hafa verið sl. viku. Kennarar senda nánari upplýsingar um útfærslu á kennslustundunum og  því er mikilvægt að fylgjast vel með tilkynningum sem frá þeim koma.

Kennsla verður í Hamarsskóla fyrir nemendur í 1. og 2. bekk sem eiga foreldra/forráðamenn í framlínustörfum og eru þ.a.l. í forgangshópi skv. forgangslista neyðarstigs almannavarna. Þeir nemendur mæta í skólann á sama tíma og undanfarna daga, þ.e. 1. bekkur kl. 9:00 og 2. bekkur kl. 8:30  Niðurstöður er varða úrvinnslukví nemenda í 1.-4. bekk eru væntanlegar í kvöld.

Frístundaver verður opið en eingöngu fyrir nemendur í forgangshópi. Starfsemin verður áfram í Hamarsskóla eins og undanfarna viku.

Starfsemi leikskólanna verður með sama fyrirkomulagi og sl. viku.

Kennsla í Tónlistarskóla verður í formi fjarkennslu eins og kostur er. Kennarar munu hafa samband við sína nemendur.

Þeir foreldrar/forráðamenn sem eru í forgangi og þurfa rýmri tíma í skóla og/eða frístund er bent á að hafa samband við stjórnendur.

Rétt er að árétta að allar umsóknir um forgang eiga að fara í gegnum island.is

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri

Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri

 

Ogłoszenie o zajęciach szkolnych

Zajęcia szkolne w szkole podstawowej w Vestmannaeyjar odbędą się w systemie online od poniedziałku 23 marca od odwołania. Jest to element zaostrzenia działań, aby zmniejszyć rozprzestrzenianie się wirusa COVID-19, dlatego że niemożliwe jest zorganizowanie nauczania z nałożonymi zakazami zbiorowymi obowiązującymi na wyspie. Lekcje online odbędą się w każdym roczniku w tym samym czasie, w którym odbywały się lekcje w ostatnim tygodniu. Nauczyciele wyślą dokładne informacje o tym, jak wyglądać będzie lekcja, a więc ważne jest, aby śledzić informacje, które zostaną od nich wysłane.
Lekcje odbędą się w Hamarsskóli dla uczniów w 1 i 2 klasie, którzy mają rodziców/opiekunów na froncie działań i są w grupie priorytetowej wedle listy priorytetowej stanu nadzwyczajnego ochrony cywilnej. Ci uczniowie przychodzą do szkoły w tym samym czasie jak w ostatnich dniach, czyli 1 klasa godz. 9:00 i 2 klasa godz. 8:30. Wyniki dotyczące tymczasowych kwarantann w klasach 1-4 są oczekiwane dziś wieczorem.
Świetlica Frístund będzie otwarta jedynie dla uczniów z grupy priorytetowej. Praca w Hamarsskóli odbędzie się w takiej samej organizacji jak w ostatnim tygodniu.
Działalność przedszkoli odbędzie się w takim samym systemie jak w ostatnim tygodniu.
Lekcje w szkole muzycznej odbędą się w formie online, na ile będzie to możliwe. Nauczyciele skontaktują się ze swoimi uczniami.
Ci rodzice/opiekunowie, którzy potrzebują dłuższego czasu w szkole i/lub świetlicy proszeni są o kontakt z dyrekcją.
Warto wspomnieć, iż wszystkie wnioski o priorytet muszą zostać zgłoszone przez stronę island.is

Íris Róbertsdóttir burmistrz
Anna Rós Hallgrímsdóttir dyrektor szkoły podstawowej

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.