Orkídeu ýtt úr vör
13. júlí, 2020
Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands Myndir: Hari.

Orkídeu, nýju samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi, hefur verið ýtt úr vör með undirskrift fulltrúa allra þeirra sem að verkefninu standa, en það eru Landsvirkjun, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóli Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Orkídea snýst um uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi, til dæmis við matvælaframleiðslu og líftækni, sjálfbæra nýtingu auðlinda, sprotastarfsemi og að undirbúa svæði til að taka á móti orkutengdri nýsköpun. Eitt meginmarkmiða samstarfsins er að auka verðmætasköpun í matvælaframleiðslu í landinu og gera framleiðsluna umhverfisvænni með nýtingu á grænni orku sem býr þannig til tækifæri fyrir íslenska matvælaframleiðendur til að vera samkeppnishæfir á alþjóðamarkaði. Ætlunin er að stuðla að aukinni nýsköpun og rannsóknum á sviði hátæknimatvælaframleiðslu með öflugu samstarfi við háskóla, rannsóknastofnanir og atvinnulíf og fjölga möguleikum svæðisins til að takast á við áskoranir samtímans og gera svæðið leiðandi þegar kemur að samspili orku, umhverfis og samfélags.

Heiti samstarfsverkefnisins, Orkídea, vísar bæði til grænu orkunnar og til þeirrar hugmynda – ídea – sem spretta upp í frjóum farvegi.

Auglýst verður eftir framkvæmdastjóra og rannsókna- og þróunarstjóra fljótlega, en starfsstöð Orkídeu verður á Suðurlandi.

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Aukin verðmætasköpun í íslenskri matvælaframleiðslu með nýtingu á grænni orku er eitt af þeim stóru tækifærum sem blasa við okkur Íslendingum. Við sem matvælaþjóð, byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti bæði til sjós og lands, höfum alla burði til að vera í fararbroddi á þessu sviði á heimsvísu. Ábyrgð stjórnvalda er að skapa skilyrði og farveg til þess að svo megi verða. Því er stofnun Orkídeu frábært skref að því markmiði og ég bind vonir við að verkefnið ýti enn frekar undir þá sókn sem framundan er í íslenskri matvælaframleiðslu.“

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar:

„Nýsköpun og bætt nýting náttúruauðlinda hefur sennilega sjaldan verið mikilvægari fyrir okkur Íslendinga, í ljósi efnahagsástandsins nú um stundir. Á þessum fordæmalausu tímum megum við ekki leggja árar í bát, heldur verðum við að snúa vörn í sókn. Hér eru mikil og ónýtt tækifæri og þessu verkefni er ætlað að virkja það hugvit og auðlindir sem við erum svo rík af og verða tvímælalaust grundvöllur að hringrásarhagkerfinu og hagsæld íslensku þjóðarinnar í framtíðinni. Við hjá Landsvirkjun erum stolt að hafa leitt saman þann öfluga hóp, sem stendur að baki Orkídeu.“

Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga:

„Tilurð samstarfsverkefnisins Orkídeu er rökrétt framhald af mörkun stefnu fyrir Suðurland í Sóknaráætlun Suðurlands 2020 – 2024 og orkustefnu fyrir landshlutann. Í Sóknaráætluninni er m.a. tilgreint að á Suðurlandi sé öflugt atvinnulíf með aukinni nýsköpun, framleiðni og fjölbreyttum atvinnutækifærum. Heimamenn sjá landshlutann fyrir sér á árinu 2024 þannig að: Á Suðurlandi hefur aukin nýsköpun, framleiðni og fjölgun fyrirtækja leitt af sér öflugra atvinnulíf. Mannlíf og lífsgæði á Suðurlandi blómstra með aukinni velferð, lifandi menningu og stóraukinni samvinnu. Kolefnisspor Suðurlands hefur dregist saman með bættri umhverfisvitund og breyttu neyslumynstri. Suðurland hefur m.a. yfir að ráða miklum náttúruauðlindum, mannauði og öflugri matvælaframleiðslu. Samstarfsverkefnið gerir okkur kleift að nýta þau sóknarfæri sem eru til staðar með öflugum samstarfsaðilum, Sunnlendingum og Íslendingum öllum til heilla.“

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands:

„Landbúnaðarháskóli Íslands fagnar stofnun Orkídeu og því formlega samstarfi sem komið hefur verið á fót. Íslendingar eiga mikil tækifæri til nýsköpunar og aukinnar matvælaframleiðslu með nýtingu hreinnar orku og annarra náttúruauðlinda með sjálfbærni að leiðarljósi. Orkídea styður beint við stefnu Landbúnaðarháskólans sem samþykkt var á síðasta ári þar sem horft er til þess að efla nýsköpun, rannsóknir og kennslu á öllum skólastigum og mun eiga þátt í því að efla starfsemi skólans á Suðurlandi með því að styrkja og byggja upp innviði og bæta enn frekar nýtingu þeirra.“

Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Myndir: Hari.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst