Sverrir Gunnlaugs minntist meistara Vídalíns á 300 ára ártíð biskups

Sæmdarhjónin Kolbrún Þorsteinsdóttir og Sverrir Gunnlaugsson voru heiðursgestir í Þingvallakirkju í gær við athöfn í tilefni af því að nákvæmlega 300 ár voru liðin frá andláti Jóns Skálholtsbiskups Vídalíns (1666-1720). Sverrir var um árabil skipstjóri á togaranum Jóni Vídalín VE og séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, sagði í ávarpi í kirkjunni að Sverrir væri eini maðurinn í Íslandssögunni sem hefði tekist að stjórna Jóni Vídalín!

Í turni Þingvallakirkju er merkileg klukka sem Vídalín biskup gaf á sínum tíma til kirkjunnar og Einar Á. E. Sæmundssen hringdi klukku að sjálfsögðu oft og lengi í tilefni dagsins.

Að athöfn lokinni var ekið eina 20 kílómetra að hryssingsveðri fyrstu haustlægðarinnar í ár að Biskupsbrekku við Uxahryggjaveg þar sem önnur athöfn átti sér stað í tilefni af 300 ára ártíð meistara Vídalíns.

Í þessari brekku andaðist Vídalín 20. ágúst 1720 á leið sinni vestur á Snæfellsnes. Þarna hefur frá árinu verið álkross á minningarsteini frá 1963 en engar heimildir eru um hver hafi komið honum fyrir.

Nú hefur verið komið fyrir veglegum trékrossi í minningu Vídalíns og minnismerki við krossinn eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli. Hann fann steininn á Kaldadal og sagði að ásjóna biskups hefði verið þar fyrir en hann hefði einungis þurft að skerpa ögn andlitsdrættina!

Séra Kristján Björnsson í Skálholti stýrði vígsluathöfninni og fleiri tóku þátt í henni, þar á meðal biskupinn yfir Íslandi, séra Agnes M. Sigurðardóttir og séra Geir Waage í Reykholti. Páll á Húsafelli lét á steinhörpuna sína og einn steinninn í hljóðfærinu er helgaður séra Jóni Vídalín og gefur frá sér tóninn E.

Skálholtsfélagið hið nýja beitti sér fyrir því að meistara Vídalíns yrði minnst á þennan hátt, með Erlend Hjaltason stjórnarformann þess í fararbroddi. Vinnslustöðin styrkti verkefnið í minningu Jóns Vídalíns og skipstjóranum á Jóni Vídalín VE var verðskulduð virðist sýnd við þessar áhrifaríku afhafnir í Þingvallakirkju og síðan við Biskupsbrekku.

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.