Fyrsta síld haustsins
Kap VE við löndun

Kap VE kom til Eyja í morgun með fyrsta síldarfarminn á þessari haustvertíð. Um er að ræða 760 tonn af síld úr norsk-íslenskastofninum sem Kapin fékk fyrir austan land. Uppsjávarskipin eru nú í óðaönn af skipta af makrílveiðum og yfir á síld.

“Þetta er fín síld við erum bæði að flaka og heilfrysta. Við eigum svo von á Ísleifi á morgun með svipaðan skammt þannig að þetta byrjar bara vel,” sagði Benóný Þórisson framleiðslustjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar. Benóný sagði aðspurður að það tæki um sólarhring að skipta uppsjávarvinnslu fyrirtækisins úr makríl vinnslu í það að geta tekið á móti síld. “Það er ekki stórmál og við erum klárir í síldina,” sagði Benóný

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.