Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fór í þurrkví í Hafnarfirði í gær. Þar fer fram ábyrgðarskoðun, í samræmi við smíðasamning. Gert er ráð fyrir að skipið verði frá í um það bil þrjár vikur og leysir Herjólfur III það af á meðan. Fór sá gamli fyrstu ferðina í Landeyjahöfn í fyrradag.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir í samtali við mbl.is að frá því skipið kom til landsins hafi komið upp ýmis mál, stór og smá, sem þurfi að fara yfir og lagfæra. Fulltrúar pólsku skipasmíðastöðvarinnar og viðeigandi undirverktaka komi til landsins til að fara yfir þessi atriði. Meðal atriða sem lagfæra þarf er loftræsting í rými fyrir rafhlöður skipsins. Ekkert atriði er það stórt að skipið hafi ekki getað siglt.
Gamli Herjólfur er djúpristari en sá nýi. Er nægilegt dýpi í Landeyjahöfn, eins og er, og verður fylgst með þróun mála. Guðbjartur segir að hann sé hins vegar viðkvæmari fyrir sjólagi og veðri en nýrra skipið. Verður að koma í ljós hvernig þau mál þróast næstu vikur.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.