Einyrkjastarfsemi og íþróttastarf barna leyft á ný

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, ræddi við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi nú í hádeginu um breytingar á sótt­varn­a­regl­um hér­lend­is sem taka gildi 18. nóvember.

Breytingarnar eru þær að einyrkjastarfsemi verður heimiluð á ný, það er starfsemi til dæmis hárgreiðslustofa, nuddara og snyrtistofa. Þá verður íþróttastarf barna leyft, með og án snertingar. Að auki verður í öllum hópum á framhaldsskólastigi 25 manna hámark með tveggja metra reglu sem hingað til hefur aðeins verið í boði fyrir 1. árs nema. Reglurnar gilda til 2. desember. Breytingarnar eru samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis að sögn Svandísar.

uppfært 14:50

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra leggur hann til að hægt verði farið í allar tilslakanir á næstunni. Breytingarnar sem taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember eru eftirfarandi:

  • Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur. Þetta á við um s.s. hárgreiðslustofur, nuddstofur, öku- og flugkennslu og sambærilega starfsemi. Hámarksfjöldi viðskiptavina á sama tíma er 10 manns.
  • Æfingar, íþróttastarf, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar takmarkanir settar varðandi blöndun milli hópa. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.–4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
  • Í skólastarfi á framhaldsskólastigi mega nemendur og starfsmenn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota andlitsgrímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð.
  • Veitt er undanþágu frá grímuskyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsufarsástæðum eða ef viðkomandi skortir þroska eða skilning til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig undanþegnir grímuskyldu geti þeir sýnt gilt vottorð þess efnis.

Breytingar á reglugerðum um takmarkanir á samkomum og skólahaldi vegna farsóttar taka gildi 18. nóvember. Gildistími reglugerðanna er til og með 1. desember næstkomandi.

Nýjustu fréttir

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.