Vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Herjólfs ofh. kemur til greina að engir starfsmenn verði lengur í afgreiðslu félagsins við Landeyjahöfn og Þorlákshöfn. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum. Þetta segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf í viðtali á mbl.is.
Leita allra leiða
Verktaki hefur séð um afgreiðsluna við Landeyjahöfn og Þorlákshöfn og eru starfsmennirnir þar því ekki á vegum Herjólfs ohf. Um er að ræða fimm til sex starfsmenn, að sögn Guðbjarts.
„Útfærslan eða niðurstaðan liggur ekki fyrir hvort þetta verður áfram með óbreyttu sniði eða hvort það verða gerðar breytingar,“ segir hann en meðal annars velta menn fyrir sér hvort gerlegt sé að hafa afgreiðsluna mannlausa og fólk geti þjónustað sig sjálft.
„Áhrifin af covid hafa verið allveruleg á félagið. Við erum að reyna að aðlaga okkar rekstur að því umhverfi og leita allra leiða,“ segir hann. „Þetta er vissulega ein af þeim sviðsmyndum, þ.e. að vera ekki með, eða í það minnsta lágmarksmönnun í Þorlákshöfn og í Landeyjahöfn,“ greinir hann frá.
Ljóst fyrir næstu mánaðamót
Öllum starfsmönnum Herjólfs var sagt upp um mánaðamótin ágúst/september og síðan þá hefur endurskipulagning verið í gangi á rekstri félagsins. Greint verður frá útkomu hennar fyrir næstu mánaðamót, að sögn Guðbjarts. Nú þegar er ljóst að Vestmannaeyjabær verður áfram með ferjuna til næstu þriggja ára og siglt verður sex til sjö ferðir daglega eins og verið hefur. Samningaviðræðum Herjólfs ohf., Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar er lokið og var þetta niðurstaðan.
Uppsagnarfrestur starfsmanna Herjólfs rennur út um næstu mánaðamót. Spurður segir Guðbjartur að gengið sé út frá því að tryggja fólkinu störf áfram. Allt sé það að miðast í rétta átt. Ekki verður þó endurráðið fyrr en niðurstaða er komin í tengslum við endurskipulagninguna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst