Samræmd dagatöl skóla og frístundavers

Skóladagatal var til umræðu á fundi fræðsluráðs í gær en um var að ræða framhald af 7. máli frá 337. fundi fræðsluráðs þann 25. nóvember 2020 og 1. máli frá 338. fundi fræðsluráðs þann 16. desember 2020.

Starfshópur sem fræðsluráð skipaði á 338. fundi fræðsluráðs þann 16. desember til að vinna tillögu að fyrirkomulagi sumarlokunar og sumarleyfis fyrir sumarið 2021 leggur eftirfarandi til:

Leikskólarnir verði lokaðir frá 12.-30. júlí og að foreldrar/forráðamenn velji tvær vikur að auki þannig að sumarleyfi barns verði fimm vikur samfellt. Þá er lagt til að dagana 26.-29. júlí verði í boði heilsdagsgæsla. Ráðið samþykkir tillögur starfshóps. Framkvæmdastjóra sviðs er falið að sjá til þess að aukinn kostnaður vegna heilsdagsgæslu rúmist innan fjárhagsáætlunar komi hann til.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.