Veiðar á flugfýl og súluungum bannaðar?
27. febrúar, 2021
Karl Gauti Hjaltason þingmaður

Gömul hefð
Fyrr á tíð tíðkaðist það á hverju heimili á stórum svæðum, sérstaklega undir Eyjafjöllum, að veiða fýlsunga til vetrarins. Þá hefur veiði á súluungum í úteyjum lengi tíðkast í Vestmannaeyjum. Súlu er að finna í þremur eyjum hér í grenndinni; í Súlnaskeri, Brandinum og Hellisey.
Víða er þessum sið enn viðhaldið, hefðanna vegna og til að veiði- verkunar- og matreiðsluaðferðir falli ekki í gleymskunnar dá. Nýlega mælti umhverfisráðherra fyrir frumvarpi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í lögunum er að finna nokkur nýmæli, en það sem vakti athygli mína var að verði frumvarpið að lögum munu svæðis- og hefðbundnar veiðar á fýls- og súluungum leggjast af.

Hefðbundin villibráð
Þrátt fyrir að veiðar á fýlsungum hafi ekki verið mikið stundaðar í Vestmannaeyjum á síðustu árum, þá eru hér stundaðar veiðar á Súluungum í nokkrum úteyjum. Veiðar þessar hafa lengi verið í smáum stíl, en súlan þykir ómissandi kostur á villibráðarkvöldum og í ýmsum veislum, bæði í Eyjum og uppi á meginlandinu. Nú eru horfur að þessar veiðar verði bannaðar. Súlunni hefur fjölgað mikið kringum Eyjar á síðustu árum, kannski vegna aukningar á hentugu æti í hafinu fyrir Súluna, en nú er svo komið að sögn úteyjamanna að Súlubyggðir hafa stækkað ört í þeim þremur eyjum þar sem finna má Súlubyggð. Svæði annarra tegunda dregst saman að sama skapi. Menningarhefðir vegna þessara veiða eru vitaskuld einnig í hættu.

Heyra þessar veiðar sögunni til?
Í frumvarpinu er lagt bann við veiðum á ófleygum ungum. Það hefur tíðkast á svæðum undir Eyjafjöllum alla tíð að veiða fýlsunga. Enda þótt þessi siður, sem var algengur á þessum slóðum og reyndar víðar, sé nú stundaður í miklu minna mæli en áður, heldur fólk í gamlar hefðir við veiðar og matseld. Það væri því mikil eftirsjá í því að leggja fortakslaust bann við þessum sið. Veiðar í svo smáum stíl ættum við að halda í og leyfa. Flugfýllinn lendir oft í sjálfheldu og á þá fyrir höndum hungurdauða eða verða æti fyrir varg.

Víðtækar heimildir til ráðherra og stofnana hans
Í frumvarpinu er að finna víðtækar heimildir til handa ráðherra til friðunar með setningu reglugerða, svo sem um friðun fuglabjarga. Þá er að finna í frumvarpinu ákvæði um veiðivörslu Umhverfisstofnunar, sem tekur yfir allt landið. Veiðivarslan mun fylgja ákveðinni eftirlitsáætlun sem verði undanþegin upplýsingalögum. Á Alþingi hef ég varað við sífellt auknu framsali löggjafans á valdi til ráðherra og auknum heimildum stofnana til eins konar lögreglu- og sektarvalds og hér er skýr dæmi um slíkt.

Umsagnarferli
Ég mun beita mér fyrir breytingu á þessu frumvarpi í þá átt sem hér hefur verið lýst. Nú er frumvarpið í umsagnarferli og öllum er frjálst að senda inn athugasemdir.

Karl Gauti Hjaltason
kgauti@althingi.is
Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst