Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í forvali VG í Suðurkjördæmi. Almar Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi og formaður svæðisfélags Vg í Árnessýslu, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftárhreppi, Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri og formaður svæðisfélags Vg á Suðurnesjum, Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður, Róbert Marshall, leiðsögumaður, bjóða sig fram í fyrsta sæti.
Að auki bjóða Sigrún Birna Steinarsdóttir, háskólanemi og formaður Ungra Vinstri grænna sig fram í 2. – 3. sæti, Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi í 2. – 5. sæti og Anna Jóna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur í 3. – 5. sæti.
Nálgast má allar upplýsingar um forvalið á heimasíðu vg.is og heimasíðu VG í Suðurkjördæmi. sudur@vg.is
Kjörstjórn heldur þrjá formlega kynningarfundi með frambjóðendum á zoom og eru þeir auglýstir á vg.is.
Fyrstu tveir fundirnir eru opnir öllum, en sá síðasti er fundur ætlaður félögum í VG sem eru kjósendur í forvalinu.
Fyrsti fundurinn verður haldinn 16. mars, annar fundurinn verður 25. mars, 31. mars verða síðustu forvöð að skrá sig í VG til að taka þátt í forvalinu. Síðasti fundur kjörstjórnar með frambjóðendum sem er eingöngu ætlaður félögum í VG verður haldinn 8. apríl.
Forval VG í Suðurkjördæmi hefst klukkan 00.01 á miðnætti 10. apríl og lýkur klukkan 17.00 þann 12. apríl. Úrslit verða kunngjörð sama dag.
Forvalið er rafrænt og hægt er að kjósa með rafrænum skilríkjum eða íslykli á heimasíðu vg.is.
Úrslit forvalsins eru bindandi, að öðru leyti en því, að tryggja skal að ekki halli á konur á listanum. Þá skal tryggt að ekki séu færri en tvö af hvoru kyni í fimm efstu sætum listans. Kjörstjórn Suðurkjördæmis stillir svo upp 20 manna framboðslista að teknu tilliti til aldursdreifingar, kyns, búsetu, uppruna, starfs osfrv. þannig að listinn endurspegli samfélagið sem best. Framboðslisti VG í Suðurkjördæmi verður lagður fram til samþykktar á kjördæmisþingi í maí.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.