Vestmannaeyjar á meðal dýrari svæða í húshitun

Líkt og undanfarin ár, hefur Byggðastofnun fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni, á nokkrum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 m3. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, s.s. ljós og heimilistæki, en miðað er við 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun án varmadælu og 14.200 kWst með varmadælu.

Nú er komin út skýrsla um orkukostnað heimila m.v. gjaldskrár 1. september 2020. Auk staðanna sem miðað var við síðustu ár hafa 22 nýir staðir bæst við og ná tölur fyrir þá alla aftur til 2014. Samhliða skýrslunni kemur jafnframt út mælaborð þar sem hægt er að skoða orkukostnað í þéttbýli á korti og súluritum.

Raforka
Lægsta mögulega verð fyrir viðmiðunareignina, með flutnings- og dreifingarkostnaði, fæst hjá Veitum: Í Mosfellsbæ, í Reykjavík, Kópavogi, austurhluta Garðabæjar, á Seltjarnarnesi og á Akranesi, um 79 þ.kr. Hæsta gjald í þéttbýli er um 92 þ.kr. hjá Orkubúi Vestfjarða en raforkuverð eru áberandi hærri í dreifbýli, eða um 121 þ.kr. Lægsta mögulega verð í dreifbýli 53% hærra en lægsta mögulega verð í þéttbýli.

Húshitun
Þegar kemur að húshitunarkostnaði viðmiðunareignar er munurinn á milli svæða mun meiri en á raforkuverði. Lægsta mögulega verð er hæst 191 þ.kr. á stöðum þar sem þarf að notast við beina rafhitun, meðal annars á Grundarfirði, á Hólmavík, á Neskaupstað, á Reyðarfirði, í Vík og á Vopnafirði auk dreifbýlis á svæðum RARIK og Orkubús Vestfjarða. Með varmadælu er þó áætlað að hann geti lækkað í um 96 þ.kr. fyrir viðmiðunareign, eða um 50%. Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Flúðum og Seltjarnarnesi um 66 þ.kr. og í Brautarholti á Skeiðum um 53 þ.kr. og á þessum stöðum er því húshitunarkostnaður um þriðjungur af kostnaðinum þar sem hann er hæstur.

Vestmannaeyjar
Þegar staðan í Vestmannaeyjum er skoðuð þá er verðið á raforku fyrir áður nefnda viðmiðunareign 81.277 krónur sem er meðal þess lægst sem býðst á landinu. Þegar hitaveitan er aftur á móti skoðuð er kostnaður á ársgrundvelli 148.532 krónur sem skipar Vestmannaeyjum í hóp dýrari sveitarfélaga þegar kemur að húshitun. Þó ber að skoða þessar tölur með það til hliðsjónar að í Vestmannaeyjum er notast við húshitun með kyntri hitaveitu sem er fremur dýr og hitaveita með þeim hætti hvergi ódýrari en í Vestmannaeyjum.  

Heildarorkukostnaður
Ef horft er til lægsta mögulega heildarorkukostnaðar fyrir viðmiðunareignina þá er hann, líkt og undanfarin ár, hæstur í dreifbýli þar sem ekki er hitaveita 312 þ.kr. Heildarkostnaður í þéttbýli er hæstur 284 þ.kr. á Hólmavík og öðrum þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum með beina rafhitun og þar næst 279 þ.kr. á þéttbýlisstöðum annars staðar á landinu þar sem er rafhitun, þ.m.t. í Grundarfirði, á Neskaupstað, á Reyðarfirði og á Vopnafirði. Lægsti heildarorkukostnaður landsins er á Seltjarnarnesi 145 þ.kr. en þar næst á Flúðum 155 þ.kr. og í Mosfellsbæ 160 þ.kr.

Nánari upplýsingar má sjá í meðfylgjandi skýrslu.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.