„Margar mjög góðar umsóknir hafa borist,“ segir Hörður Baldvinsson Framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja þegar blaðamaður spurði um stöðu umsókna sem auglýstar voru nýlega hjá Þekkingarsetrinu. Tíu umsóknir bárust um starf þjónustustjóra – bókara. „Það var sérstaklega ánægulegt að sjá hversu mikið er af mjög hæfileikaríku fólki hefur áhuga að vinna hjá okkur, en ætlunin er að taka viðtöl í byrjun næstu viku. Varðandi hitt starfið sem við höfum verið að auglýsa, þá er síðasti séns að skila inn umsókn á miðnætti þann 30. maí n.k. Ég hef fulla trú að við fáum góðar umsóknir enda er hér um sérlega áhugavert starf að ræða sem snýr að því að stuðla að samstarfi fyrirtækja, einstaklinga, félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga á Suðurlandi. Ég vil bara hvetja jafnt konur sem karla að kynna sér þetta frábæra starf sem við erum að auglýsa því hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir réttan einstakling.“
Upplýsingar um starfið má nálgast hér
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.