Umdeildur undirskriftalisti
Margt er gjarnan um mannin í brekkunni í Herjólfsdal.

Ritstjóri Eyjar.net og fyrrverandi formaður þjóðhátíðarnefndar, Tryggvi Már Sæmundsson, tilkynnti í gær á fréttavef sínum að hann efndi til undirskriftalista til stuðnings Ingó Veðurguð. Markmiðið er að fá þjóðhátíðarnefnd til þess að endurskoða ákvörðun sína að afbóka Ingólf Þórarinsson sem einn af skemmtikröfum hátíðarinnar í kjölfar sögusagna um kynferðisofbeldi.

Allir helstu vefmiðlar landsins hafa fjallað um málið undanfarna daga allt frá því að sögur fórnarlamba fóru á flakk, meðal annars á samfélagsmiðlinum TikTok. Í kjölfarið tók þjóðhátíðarnefnd þá ákvörðun að hafa Ingó ekki með í dagskrá Þjóðhátíðar þetta árið og því þarf að finna nýjan einstakling til þess að halda brekkusönginn vinsæla.

Miklar umræður hafa átt sér stað í netheimum vegna ákvörðunarinnar. Meðal annars hefur forsvarsfólk forvarnarhópsins Bleika fílsins í Vestmannaeyjum fagnað ákvörðuninni. Meðan fyrrverandi stjórnandi gæsluhóps á Þjóðhátíð, Baldur Már Róbertsson, hefur gagnrýnt hana mjög eins og fram kom á Vísi.is.

Ritstjórinn, Tryggvi Már, er einn þeirra sem setur sig upp á móti ákvörðun nefndarinnar og leggur hann eftirfarandi rök máli sínu til stuðnings: “Það er ótækt með öllu að dómstóll götunnar stjórni því hverjir komi fram á viðburðum á Íslandi. Engin kæra liggur fyrir og því er engin rannsókn í gangi.” Eins og stendur á vefsíðu undirskriftalistans.

Í kjölfar þess að undirskriftalistinn sjálfur leit dagsins ljós hafa um hann verið rituð ýmis ummæli. Nokkur þeirra hafa verið áberandi á samfélagsmiðlinum Twitter.

Þeir sem ritað hafa undir listann styðja hann með sambærilegum rökum og Tryggvi Már, eins og eftirfarandi ummæli sýna:

Steinunn Snæland-Bergendal, Noregi: “Eigum við að trúa öllu sem dætur okkar segja, en trúa engu sem synir okkar segja? Hvaða skilaboð eru það?”

Þorfinnur Þ. Guðbjartsson, Hafnarfirði: “Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð.”

Jón Sigurðsson, Reykjavík: “Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð. Dómstóll götunnar hefur ekkert gildi.”

Jóhann Horðfjörð, Selfoss: “Aftaka en dóms og laga á ekki að líðast í réttarríki. Að elta dóm dóm götunnar er afbökun á réttlæti”

Valgeir Árnason, Akureyri: “Það er ljótt að það sé hægt að hafa mannorð af einhverjum án nokkurra málaferla”

Stefán Þór Sigfinnsson, Kópavogur: “Dómstóll Götunnar er ekki sérstakt dómstig í okkar lýðræðisríki. Þetta setur ákaflega slæmt fordæmi að hægt sé að dæma og taka af lífi nafnlaust án dóms og laga.”

Þegar þessi frétt er skrifuð höfðu rúmlega 1.500 einstaklingar þegar skrifað undir hina umdeildu áskorun þess efnis að Ingó verði aftur ráðinn sem einn af listamönnum hátíðarinnar.

Í ljósi orðalags yfirlýsingar þjóðhátíðarnefndar má telja ólíklegt að til greina komi að ræða eða endurskoða ákvörðunina.

Nýjustu fréttir

Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Sumarið heilsar með stórleik
ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.