Makrílinn mestur austan við landið
Útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar, kolmunna og hrognkelsa skv. mælingum.

Í lok júlímánaðar lauk rannsóknaskipið Árni Friðriksson þátttöku sinni í árlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi sem hófst 5. júlí s.l.

Í leiðangrinum var rannsökuð útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar og Norðmenn rannsökuðu. Bráðbirgða niðurstöður sýna að magn makríls í íslenskri landhelgi er meira en sumarið 2020 en mun minna en áratuginn þar á undan. Makríll hefur áberandi meiri útbreiðslu fyrir austan landið en sumarið 2020 en þéttleikinn er lítill.

Líkt og undanfarin ár veiddist norsk-íslensk vorgotssíld á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslensk sumargotssílds veiddist á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið. 0-ára kolmunni veiddist við landgrunnsbrúnina fyrir sunnan og vestan landið sem gerðist síðast í þessum leiðangri sumarið 2011. Lítið mældist af kynþroska kolmunna. Hrognkelsi voru með mesta útbreiðslu allra tegunda og veiddust á 59 af 64 stöðum. Í leiðangrinum voru merkt alls 451 hrognkelsi.

Teknar voru 64 togstöðvar og sigldar voru um 4300 sjómílur eða 8 þúsund km.
Frekari greining á gögnum frá skipunum fimm mun liggja fyrir í lok ágúst.

Fjallað var um leiðangurinn á vef Hafrannsóknastofnunar.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.