Tekjur sveitarfélaga jukust meira árið 2020 en spár gerðu ráð fyrir

Tekjur sveitarfélaga landsins jukust meira en útkomuspár gerðu ráð fyrir samkvæmt greiningu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert á ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2020. Rekstrarkostnaður sveitarfélaga reyndist á hinn bóginn nokkuð hærri en áætlað var. Útlit er fyrir að fjárhagsáætlanir sveitarfélaga verði nálægt áætlunum fyrir rekstrarárið 2021 miðað við gögn frá 49 sveitarfélögum. Gögnin sýna að rekstrarniðurstaða sveitarfélaganna muni í heild versna um tæplega 1% miðað við spár.

Skatttekjur sveitarfélaga á árinu 2020 námu um 270 milljörðum kr. sem er um 4,1% aukning frá fyrra ári. Fjárhagsáætlanir fyrir árið 2020 gerðu ráð fyrir um 5,5% aukningu. Heildartekjur árið 2020 námu um 369 milljörðum kr. og vaxa einnig um 4,1%. ‚Útkomuspár sveitarfélaga um samdrátt í tekjum sveitarfélaga í samanburði við fjárhagsáætlun, m.a. vegna áhrifa faraldursins á efnahagslíf, hafa því ekki gengið eftir. Útkomuspáin gerði ráð fyrir um 0,7% aukningu heildartekna frá árinu 2019.

Laun og launtengd gjöld á árinu 2020 námu um 211 milljörðum kr. sem er um 11,8% aukning frá fyrra ári. Fjárhagsáætlanir fyrir árið 2020 gerðu ráð fyrir um 6,6% aukningu. Heildar rekstrarkostnaður á árinu 2020 var um 358 milljarðar kr. sem er um 10,6% aukning frá fyrra ári. Nokkur aukning í launakostnaði fyrir árið 2020 í samanburði við fjárhagsáætlun er staðreynd en kjarasamningar setja nokkuð mark sitt á þessa þróun.

Helstu breytingar frá 2019   2020 Fjárhagsáætlun 2020 Útkomuspá 2020
Skatttekjur + 4,1% + 5,5% 0,9%
Heildartekjur + 4,1% + 5,2% 0,7%
Launakostnaður + 11,8% + 6,6% 9,7%
Heildar rekstrarkostnaður + 10,6% + 6,2% 9,1%

 

Samanlögð rekstrarniðurstaða á árinu 2020 hjá sveitarfélögum landsins reyndist vera halli sem nemur um 8,8 milljörðum kr. samanborið við um 14,7 milljarða kr. samanlagðan hagnað árið 2019. Fjárhagsáætlanir ársins 2020 gerði ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð um 6,7 milljarða kr.

Veltufé frá rekstri á árinu 2020 var um 19,2 milljarðar kr. sem er um 45% samdráttur frá fyrra ári (34,6 milljarðar kr.). Fjárhagsáætlun ársins 2020 gerði ráð fyrir um 30,4 milljarðar kr. og skýrist samdráttur að nokkru af auknum launakostnaði umfram tekjuaukningu.

Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélaga námu um 411 milljörðum kr. á árinu 2020 sem er um 11% aukning frá fyrra ári. Fjárhagsáætlanir ársins 2020 gerðu ráð fyrir að heildarskuldir og skuldbindingar yrðu um 382 milljarðar kr.

Skuldahlutfall A-hluta á árinu 2020 var um 111% en áætlanir gerðu ráð fyrir um 102%.

Þrátt fyrir hærra skuldahlutfall miðað við fjárhagsáætlun ársins 2020 er skuldaviðmið A-hluta svo gott sem það sama fyrir árið 2020 eða um 67% en áætlanir gerðu ráð fyrir um 66%.

Horfur fyrir árið 2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kallaði fyrr á árinu eftir upplýsingum um stöðu fjármála hjá sveitarfélögum landsins á yfirstandandi ári í því skyni að leggja mat á horfur í fjármálum þeirra. Meðal upplýsinga sem kallað var eftir voru fjárhagsáætlanir með viðaukum sem gerðir hafa verið á árinu sem og yfirlit yfir útsvar, laun og launatengd gjöld, fjárhagsaðstoð og fjárfestingar á fyrstu fjórum mánuðum ársins. 49 sveitarfélög sendu ráðuneytinu umbeðin gögn.

Gögnin gefa til kynna að rekstrarniðurstaða sveitarfélaganna í heild muni versna um 207 milljónir kr. (-1%) á árinu 2021 í samanburði við fjárhagsáætlanir. Veltufé frá rekstri dregst saman um 739 milljónir kr. (-14%) og handbært fé frá rekstri dregst saman um 377 milljónir kr. (-5%). Handbært fé í árslok verður því 103 milljónum kr. (-0,5%) lægra en áætlað var.

Þá verða heildareignir sveitarfélaganna 6.623 milljónum kr. (-0,95%) lægri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir, heildarskuldir og skuldbindingar þeirra verða 1.538 milljónum kr. (-0,33%) lægri en áætlað var.

Nýjustu fréttir

Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.