Haustvindar úr suðri

Lista og menningarfélag Vestmannaeyja er gestalistamaður september mánaðar hjá ART67. ART67 er litríkt listagallerí sem sýnir fjölbreytta nútímalist, málverk, leir- og glerlist eftir íslenska listamenn. Sýningin er opin virka daga 11-18, laugardaga 11-17 og sunnudaga 13-16 að Laugarvegi 61.

Lista og menningarfélag Vestmannaeyja var stofnað í mars 2019. Markmið með stofnun þess var að sameina lista- og handverksfólk eyjanna. Fyrsta starf félagsins var að finna húsnæði undir starfsemi þeirra félagsmanna sem óskuðu eftir að fá vinnuaðstöðu. Þegar húsnæðið var fundið í september sama ár fór listastarfsemin í gang. Félagsmenn eru orðnir yfir 60 og í húsnæðinu leigja 32 félagsmenn vinnuaðstöðu. 21 félagsmaður tekur þátt í þessari samsýningu sem ber heitið „Haustvindar úr suðri“ en öll verkin eru til sölu í stærðinni 40 x 40 cm. Sýningin opnar laugardaginn 4. september kl. 14.00. 

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.