Öflugri heilbrigðisþjónusta á Suðurlandi
9. september, 2021

Heilbrigðisumdæmi Suðurlands hefur lengi verið eitt vinsælasta ferðamannasvæði landsins, bæði hjá innlendum og erlendum ferðamönnum auk þess sem sumarbústaðafjöldi á svæðinu er með því sem mest gerist á landinu og fólksfjölgun hefur verið mikil. Í heilbrigðisumdæminu bjuggu árið 2020 29.9217 manns á víðfeðmu svæði.

Á kjörtímabilinu hefur verið lögð áhersla á eflingu og styrkingu heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni, þar á meðal á Suðurlandi.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) rekur sjúkrahús á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Á Selfossi er legudeild með sjúkrarýmum, hjúkrunardeild og líknarrýmum, í Vestmannaeyjum er legudeild með sjúkrarýmun og hjúkrunarrýmum og á báðum stöðum er boðið upp á ljósmæðrastýrða fæðingarþjónustu. Öflugt göngudeildarstarf er á Selfossi þar sem m.a. er veitt krabbameinsþjónusta og slysa- og bráðamóttaka er opin allan sólarhringinn. Bráðamóttakan þjónar svæðinu frá Höfn að Hveragerði, auk þess sem sumarhúsabyggð og mikill fjöldi ferðamanna á svæðinu veldur því að margir sem ekki eiga lögheimili í umdæminu leita aðstoðar á bráðamótttökunni.

Fjármagn til HSU hefur verið aukið um 19,7% á kjörtímabilinu, þ.e. á árunum 2017-2021. Nú er unnið að endurbótum og stækkun á heilbrigðisstofnuninni  sjálfri, sem mun skila sér í bættum aðbúnaði fyrir sjúklinga og starfsfólk.

Heilbrigðisstofnunin hefur verið leiðandi í veitingu fjarþjónustu, t.d. með Klausturverkefninu, þar sem læknir sem er ekki á staðnum skoðar sjúkling í gegnum fjarbúnað, Rangárþing vinnur nú að tilraunaverkefni um fjarþjónustu í  heimahjúkrun auk þess sem augnlæknaþjónusta er veitt í Vestmannaeyjum í gegnum fjarbúnað.

Fjármagn til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni hefur verið aukið verulega á kjörtímabilinu. Fjármagnið hækkaði um 200 milljónir árið 2018 og á kjörtímabilinu nema fjárframlög til tækjakaupa heilbrigðisstofnananna tæpum 1,3 milljarði samtals. Fyrir þetta aukna fjármagn til tækjakaupa hefur HSU til dæmis sett upp nýjan tækjabúnað á rannsóknarstofunni á Selfossi, keypt nýjan röntgen-myndgreiningarbúnað í Vestmannaeyjum, og endurnýjað röntgentæki á Höfn.

Á HSU hafa einnig verið opnuð fjögur líknarrými í takt við áherslur í líknarþjónustu og fjármagn var aukið til heilsueflandi móttaka fyrir eldri íbúa á kjörtímabilinu á árunum 2020 og 2021.

HSU rekur 9 heilsugæslustöðvar um allt Suðurland en heilsugæslan gegnir lykilhlutverki í að veita fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Nú er unnið að endurbótum á húsnæði á heilsugæslum víða í umdæminu.

Mikilvæg þjónusta við aldraða
Heilbrigðisumdæmi Suðurlands stendur nú þegar nokkuð vel hvað varðar fjölda hjúkrunarrýma á hverja 1000 íbúa 80 ára og eldri og biðtími eftir hjúkrunarrými er þar einna stystur á landsvísu.

Á Suðurlandi hefur þó verið unnið að uppbyggingu þjónustu við aldraða með byggingu hjúkrunarrýma á kjörtímabilinu. Framkvæmdir standa yfir við nýtt 30 rýma hjúkrunarheimili á Höfn, sem mun leysa af eldra húsnæði og fjölga hjúkrunarrýmum um sex, en áætlað er að framkvæmdum verði lokið í árslok 2022. Í Árborg er bygging 60 rýma hjúkrunarheimilis langt komin og áætluð verklok eru nú í árslok. HSU hefur verið falið að reka heimilið.

Í samvinnu við Hveragerðisbæ verður einnig ráðist í byggingu hjúkrunarheimilis þar. Með tilkomu heimilisins mun hjúkrunarrýmum fjölga um fjögur á Ási í Hveragerði og aðbúnaður verður bættur í 18 rýmum til viðbótar, í takt við nútímakröfur um einbýli. Í vikunni var svo staðfest sameiginleg viljayfirlýsing mín og sveitarstjórans í Vík í Mýrdal um byggingu nýs hjúkrunarheimilis sem leysa mun af hólmi þau 15 rými sem fyrir eru á hjúkrunarheimilinu Hjallatúni. Núverandi húsnæði er barn síns tíma og er langt frá því að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru um hjúkrunarheimili í dag.

Heilbrigðisstofnunin veitir einnig heimahjúkrun á Suðurlandi og dagdvalarrými eru á nokkrum stöðum í umdæminu, þ. á m. á Selfossi, Hveragerði, Þorlákshöfn, Vík, Vestmannaeyjum og Hellu.

Öflugri sjúkraflutningar
Ég skipaði í október 2019 starfshóp um stefnumótun í sjúkraflutningum, sem hafði það hlutverk að móta tillögur að framtíðarskipulagi sjúkraflutninga í samræmi við heilbrigðisstefnu. Hópurinn skilaði sínum tillögum að stefnu í byrjun árs 2020. Nú hafa í ráðuneytinu verið unnin drög að aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu. Samkvæmt áætluninni er stefnt að því að stofnuð verði miðstöð um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga sem hafi það hlutverk að samræma þjónustuna á landsvísu. Miðstöðin myndi skapa stjórnunarlega umgjörð um málaflokkinn, sinna ráðgjöf við fagaðila bráðaþjónustunnar í gegnum fjarskipti og sinna gæðaeftirliti með þjónustunni og tryggja viðhaldsmenntun og -þjálfun þeirra aðila sem að henni.

Einnig er stefnt að því að hrinda í framkvæmd tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu sem staðsett yrði á suð-vesturhorni landsins, vegna umfangs og fjölda útkalla á því svæði í gegnum tíðina. Með sérhæfðri sjúkraþyrlu væri unnt að veita hraðari sérhæfða þjónustu við bráðveika og slasaða á vettvangi. Sjúkraþyrla er hugsuð sem viðbót við og styrking á sjúkrabílum og læknisþjónustu í dreifbýli.

Efling geðheilbrigðisþjónustu
Sálfræðingum hefur verið fjölgað í umdæminu; úr 2,8 stöðugildum árið 2017 í 5,1 stöðugildi árið 2020, auk þess sem geðheilbrigðisteymi HSU tók formlega til starfa í lok árs 2019. Starfsemi teymisins hefur aukist jafnt og þétt en á tímabilinu október 2019 til október 2020 fengu rúmlega 200 einstaklingar þjónustu hjá geðheilsuteyminu. Markmiðið með því er að veita þverfaglega þjónustu á sviði geðheilbrigðismála og þjónusta teymisins er viðbót við þau úrræði sem hafa verið til staðar innan HSU. Reynslan af starfsemi teymisins sýnir að mikil þörf var fyrir þjónustuna. Geðheilsuteymi fanga var stofnað í árslok 2019 en teymið sinnir geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins, og skiptir meðal annars sköpum fyrir þjónustu við fanga á Litla-Hrauni.

Jafnt aðgengi skiptir öllu
Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu er mjög mikilvægt, og raunar eitt af markmiðum heilbrigðisstefnu. Á kjörtímabilinu hefur heilbrigðisþjónusta á Suðurlandi sannarlega verið styrkt á fjölbreytta vegu og þeirri vinnu þarf að halda áfram á næsta kjörtímabili.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.