Art er smart

Samningur hefur verið undirritaður á milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og félagsmálaráðuneytisins sem tryggir rekstur ART-verkefnisins næstu þrjú árin. Undirritunin markar þáttaskil í rekstrinum og er viðurkenning á að ART úrræðið sé komið til að vera. Því má segja að þetta sé stór dagur og ákveðinn sigur fyrir Sunnlendinga alla en samningurinn tryggir áframhaldandi þjónustu í heimabyggð.

ART (Agression Replacement training) hefur verið starfrækt á Suðurlandi frá árinu 2005. ART er uppeldisleg aðferðafræði sem skiptist í þrjá þætti, þ.e. félagsfærni, sjálfstjórn og siðferði. Með því að vinna á markvissan hátt með þessa þætti er hægt að láta þá vinna betur saman sem stuðlar að bættri líðan og betri tilfinningastjórnun einstaklingsins. Þar fyrir utan eykst samskiptafærni heima, á vinnustað, í skóla og vinahóp.

Teymið veitir úrræði fyrir fjölskyldur barna með tilfinninga- og/eða hegðunarvanda. Einnig býður teymið upp á námskeið fyrir fagfólk í skólum, þ.m.t. leik- og grunnskólum, velferðarþjónustum og fleira. Fjöldi ART námskeiða hafa verið haldin um land allt. Samningurinn gerir teyminu kleift að skipuleggja starf sitt lengra fram í tímann og ýta úr vör nýjum þróunarverkefnum. Þetta er mikið gleðiefni og eru starfsmenn samtakanna og stjórn SASS afar þakklát stuðningi sveitarstjórna og þingmanna sem stutt hafa við bakið á verkefninu á síðustu árum, sem og Ásmundi Einari Daðasyni félags- og barnamálaráðherra.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga:

Í sextán ára sögu ART-verkefnisins hafa námskeið verið haldin vítt og breitt um landið. ART hefur sannað gildið sitt sem forvarnar- og meðferðarúrræði sem hefur gagnast Sunnlendingum og öðrum Íslendingum. ART hefur gert góð samfélög enn betri. ART er smart.“

 

Samninginn undirrituðu Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður SASS og Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra:

Aðgengi barna að þjónustu við hæfi án hindrana er gríðarlega mikilvægt. ART verkefnið er öflugt grasrótarverkefni sem hefur sannað sig og verið mikilvægt verkfæri fyrir börn og unglinga þegar það kemur að líðan þeirra og tilfinningastjórnun.  Með þessum samningi getur teymið skipulagt starfið lengra fram í tímann og eflt það og styrkt.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.