Á­ætlunar­flug nauð­syn­legt Vest­manna­eyjum
10. nóvember, 2021

Vestmannaeyjar er eina sveitarfélagið á Íslandi sem alfarið er staðsett á eyju og hefur þ.a.l. enga vegtengingu við meginlandið. Góðar samgöngur eru undirstaða búsetugæða samfélaga og hafa batnandi sjósamgöngur með tilkomu Landeyjahafnar og nýrrar ferju valdið því að aðsókn í flugið hefur farið minnkandi en áætlunarflug til Eyja frá Reykjavík hófst fyrst með Loftleiðum 12. október 1946 og fagnar því 75 ára afmæli á árinu.

Áætlunarflug legið niðri í á þriðja mánuð annað árið í röð
Í lok sumars 2020 hætti flugfélagið Ernir að fljúga til Eyja þar sem markaðslegar forsendur brugðust ásamt því að heimsfaraldur gerði rekstraraðilanum erfitt fyrir. Icelandair hóf flug í lok desember sama ár með ríkisstuðningi fyrstu mánuðina, ætlaði að halda áfram á markaðslegum forsendum frá sumri en hætti í lok ágúst síðastliðinn þar sem forsendur voru brostnar samkvæmt félaginu. Það voru vonbrigði sérstaklega í ljósi þess að heimamenn nýta flugið einna mest yfir vetrartímann.

Áætlunarflug samfélaginu og sérstaklega viðkvæmum hópum nauðsynlegt allt árið
Íbúar reiða sig á flugið til að komast snögglega til höfuðborgarsvæðisins, hvort sem er til að sækja nauðsynlega grunnþjónustu, menntun, menningu, vegna vinnu osfrv. Eldra fólk, hreyfihamlaðir, sjúklingar, börn sem eiga foreldri á meginlandinu, barnshafandi konur eða nýbakaðar mæður sem í auknum mæli hafa þurft að fæða á höfuðborgarsvæðinu sökum lokunar skurðstofu, eru allt hópar fólks sem nýttu flugið í miklum mæli en þurfa nú að leggja á sig langt ferðalag með ferju og löngum akstri. Þörfin fyrir flugið verður svo enn ríkari á veturnar þegar slæm færð er á vegum og vályndari veður valda erfiðari siglingum til Þorlákshafnar og hafa komið upp aðstæður þar sem sjósamgöngur liggja hreinlega niðri en fært væri fyrir flug.

Mikill kostnaðarauki og óhagræði fyrir heilbrigðisþjónustuna
Mikilvægi flugsins fyrir heilbrigðisþjónustuna í Vestmannaeyjum er ótvírætt en reglulega þarf að flytja sjúklinga af sjúkradeild til rannsókna eða meðferðar í Reykjavík og þarf nú að senda alla sjúklinga með sjúkraflugi í stað áætlunarflugs sem er mikill kostnaðarauki. Sýni voru reglulega send með flugi frá Eyjum og ef þurfti í skyndi á blóði, sjúkravörum eða öðrum birgðum að halda var hægt að senda slíkt hratt og örugglega til Eyja með áætlunarflugi. Notkun sjúkraflugs í meira mæli skapar einnig óhagræði vegna óvissu um útskriftir og innlagnir sjúklinga en ekki síst eykur það álag og teppir þjónustu sjúkravélar sem er mikilvæg gagnvart allri bráðaþjónustu á landinu.

 

Mikilvægt gagnvart atvinnulífi
Atvinnulífið hefur í gegnum tíðina verið einn stærsti notandi flugsamgangna við Vestmannaeyjar, enda fyrir tilkomu Loftbrúar var kostnaður ein helsta fyrirstaðan að hinn almenni íbúi nýtti sér flugið. Flugið getur skipt sköpum þegar fá þarf með hraði aðföng, varahluti eða sérfræðiþjónustu þegar mikið liggur við t.d. á vertíðum sem skila þjóðarbúinu mikilvægum gjaldeyristekjum. Auk þess auðveldar það fagfólki í Vestmannaeyjum að sækja fundi, endurmenntun, ráðstefnur og að starfa á höfuðborgarsvæðinu. Hér skiptir þó tímasetning flugáætlunar öllu máli, þ.e. að hægt sé að fljúga að morgni og til baka síðla dags.

 

Tafarlaus aðkoma ríkisins nauðsynleg
Sagan virðist sýna að fullreynt er að halda úti flugi til Vestmannaeyja á markaðslegum forsendum amk. yfir veturinn og því eina leiðin til að halda uppi ásættanlegum flugsamgöngum allt árið er stuðningur ríkisins við samgönguleiðina. Slíkt þarf að gerast hratt og örugglega.

Í aðdraganda Alþingiskosninga virtist þverpólitískur skilningur á mikilvægi flugsins fyrir Vestmannaeyjar og flest framboð töluðu fyrir nauðsyn þess. Nú, um 7 vikum frá kjördegi, hefur staðan lítið breyst og málið virðist lítið þokast áfram. Því reynir á nýkjörna þingmenn og ekki síst samgönguráðherra að standa við fyrirheitin og tryggja að nýju áætlunarflug til Vestmannaeyja hið fyrsta, fyrir atvinnulífið, fyrir lífsgæði íbúa í Vestmannaeyjum en ekki síst til að tryggja jafnara aðgengi allra hópa að þeirri grunnþjónustu Íslendinga sem sífellt er þjappað á sömu torfuna á höfuðborgarsvæðinu.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst