Vinnslustöðin kaupir meirihluta í Hólmaskeri í Hafnarfirði
Horft yfir Vestmannaeyjahöfn af Heimakletti. Gamla vatnslögnin við Sprönguna sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni.

Vinnslustöðin hf. hefur samið um kaup á meirihluta í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri ehf. í Hafnarfirði, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Hólmasker er í eigu hjónanna Alberts Erlusonar og Jóhönnu Steinunnar Snorradóttur og nýverið keypti félagið rekstur Stakkholts ehf. á sama stað. Allt starfsfólk Stakkholts var ráðið til starfa hjá Hólmaskeri, um 35 manns. Starfsemin verður eftir sem áður í Hafnarfirði og megináhersla lögð áfram á ýsuvinnslu fyrir Bandaríkjamarkað.

Gangi kaupin eftir mun Hólmasker að uppistöðu kaupa ýsu á markaði til vinnslunnar auk þess að kaupa hluta af ýsu af Vinnslustöðinni og öðrum á markaðsverði.

Mestöll ýsa sem skip Vinnslustöðvarinnar færa að landi hefur annað hvort verið seld á markaði hérlendis eða flutt úr landi í gámum. Ýsan yrði eftir kaupin að hluta flutt frá Eyjum til Hafnarfjarðar og unnin þar.  Hér yrði því stuðlað að því að efla fiskvinnslu á Íslandi.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.