Á þriðja dag að koma sýnum til greiningar

“Tölur sem hafa birst inn á heimasíðu HSU hafa ekki gefið rétta mynd af stöðunni í Eyjum undanfarna daga þar sem komið var fram á þriðja dag án þess að sýni kæmust til greiningar.” Sagði Davíð Egilsson hjá HSU í orðsendingu til fjölmiðla. “Það kom því nokkur gusa af staðfestum smitum seinnipart föstudags eins og við var að búast. Fjöldi skráðra í einangrun í gær eru 65, og 68 í sóttkví. Hingað til hafa ekki komið upp alvarleg veikindi í þessari bylgju, en nokkrir hafa þó þurft aðstoð á heilsugæslu og einhverjir þurft stuðningsmeðferð. Enginn hefur að lagst inn á sjúkrahús.”

Smit eru að stinga sér niður á víð og dreif og hafa til dæmis komið upp smit á vinnustöðum, í grunnskólanum og á leikskóla síðustu daga. Það er slæmt þegar töf verður á niðurstöðum og eykur líkurnar á að smit nái að dreifa sér meira en ella. Sýnatökutíma var breytt til að eiga möguleika á niðurstöðum samdægurs. Þetta er gert í samvinnu við Lögregluna og Vestmannaeyjabæ  sem ætla að hjálpa við flutning sýna á áfangastað í Reykjavík. Þá er ætlunin að nota áætlunarflug þá daga sem það er í boði.  Veðrið og samgöngurnar hafa svo verið eins og þær eru síðustu daga og við það er ekki ráðið.  Ef ekki er flogið og ekki siglt í Landeyjahöfn þá fara sýnin ekki í vinnslu fyrr en daginn eftir sýnatöku.

Sterkasta vopnið sem við höfum í dag til að hægja á útbreiðslu veirunnar eru viðbrögð einstaklinga við einkennum eða útsetningu fyrir smiti.  Þeir sem eru með einkenni sem bent geta til Covid fari í PCR sýnatöku og haldi sig til hlés þar til niðurstöður berast, og hafi sjálfir frumkvæði að því að láta fólk í kringum sig vita af mögulegu smiti. Þetta er sérstaklega mikilvægt hér í Eyjum þar sem niðurstöður geta tafist.  Eins að þeir sem hafa verið í nálægð við mögulega smitaða einstaklinga fari varlega, fylgi sóttkví eða smitgát eftir atvikum þar til niðurstaða úr PCR prófi liggur fyrir. Hraðpróf hjálpa, en þau eru ekki nægilega áreiðanleg til að útilokað smit. Það má segja að jákvætt hraðpróf bendi sterklega til Covid smits, en neikvætt hraðpróf útilokar ekki smit.

Minnum á sýnatökutíma:
Kl 9:30 virka daga;    PCR sýni.  Fyrir fólk með einkenni og þá sem útskrifast úr sóttkví.
KL 11:00 virka daga;  hraðpróf

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.