Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 5. janúar síðastliðinn koma einnig fram tillögur hans um breytingar á sóttkví sem þegar hafa komið til framkvæmda, sbr. tilkynning ráðuneytisins frá 7. janúar síðastliðnum. Jafnframt fylgir hér minnisblað landlæknis og sóttvarnalæknis, dags. 10. janúar, um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og þróun faraldursins.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.