Fimm fulltrúar ÍBV í janúarverkefnum KSÍ
Hásteinsvöllur

ÍBV á fimm fulltrúa í landsliðshópum sem æfa í janúar hjá KSÍ. Íva Brá Guðmundsdóttir var valin í hóp til æfinga hjá U16, en æfingarnar fóru fram 12.-14. janúar sl. í Skessunni í Hafnarfirði. Magnús Örn Helgason er þjálfari liðsins.

Kristján Logi Jónsson var valinn í æfingahóp hjá U15, æfingarnar fara fram 24.-26. janúar nk. í Skessunni í Hafnarfirði. Lúðvík Gunnarsson er þjálfari liðsins.

Ragna Sara Magnúsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir hafa verið valdar í 25 leikmanna hóp hjá U19, æfingarnar fara fram 24.-26. janúar í Skessunni í Hafnarfirði. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins, næsta verkefni er milliriðill í undankeppni EM 2022 en þar er Ísland í riðli með Englandi, Belgíu og Wales.

Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið leikmannahóp til æfinga 26.-28. janúar nk. Æfingar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. ÍBV á einn fulltrúa í hópnum, Ernu Sólveigu Davíðsdóttur.

 

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.