Nú verða fluttar loðnufréttir

Nýlega var settur í loftið vefurinn lodnufrettir.is, þar má finna ýmsar tölulegar upplýsingar um gang loðnuveiða. Að sögn þeirra sem að verkefninu standa var loðnufréttir sett í loftið til að fylgjast með ævintýralegum aflabrögðum sem eiga sér stað í íslenskri landhelgi þegar loðnan lætur á sér kræla. Eins og flestir hafa heyrt þá stefnir í eina stærstu loðnuvertíð í 20 ár og því var ákveðið að setja upp síðu þar sem hægt er að fylgjast með framvindu vertíðarinnar, bera saman landanir skipa á þægilegan máta og lauslega vita hver verðmætasköpunin er í rauntíma. Þeir sem hafa komið inn á síðuna sem fyrstu notendur hafa allir áhuga á að rýna í hvernig verðmætin verða til en með því að fylgja eftir löndunum, nýtingu aflans og bera saman við heimsmarkaðsverð á mjöli, lýsi, og öðrum afurðum er hægt að slá upp til gamans hvernig gengur.

Að sjálfsögðu eru öll verð í þessu ekki búin að raungerast svo við styðjumst við tölur sem nefndar hafa verið í kynningum fyrirtækja fyrir komandi vertíð. Hér á árum áður var reglulega sagt í lok fréttatíma ríkisútvarpsins; “nú verða fluttar loðnufréttir” og er síðan móðins lausn til að fréttamenn nútímans þurfi ekki að lesa upp aflatölur hvers og eins skips dags daglega heldur verði einfaldlega hægt að fylgjast með á www.lodnufrettir.is  Síðan er samstarfsverkefni miðlunar- og ráðgjafafyrirtækisins Aflamiðlun & nýsköpunarverkefnisins Aflarinn.is sem er afladagbók sem verður útgerðarmönnum til boða innan skamms.

Nú verða fluttar loðnufréttir

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.