Birna Berg Haraldsdóttir hefur skrifað undir nýjan 2 ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Hún hefur verið í herbúðum ÍBV frá haustinu 2020, þegar hún kom frá Neckarsulmer í Þýskalandi. Hún hafði þá leikið í atvinnumennsku erlendis um nokkurra ára skeið.
Birna varð fyrir því óláni að meiðast alvarlega í upphafi yfirstandandi tímabils, bikarleik ÍBV gegn Gróttu, sem varð til þess að hún hefur ekki leikið með liðinu á þessu tímabili. Hún hefur verið feykilega dugleg að vinna í sinni endurhæfingu og er á góðu róli. Birna er staðráðin í að koma inn af krafti á næsta tímabili og verður það mikill hvalreki fyrir liðið.
“Þetta er mikið ánægjuefni og hlökkum við mikið til áframhaldandi samstarfs með Birnu,” segir í tilkynningu frá ÍBV.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.