Gagnrýni, Varðhundar og sannir leiðtogar
21. febrúar, 2022
Vestmannaeyjahöfn.
Grímur Gíslason

Gagnrýni er nauðsynleg  til að lýðræðið virki. Valdhafar hverju sinni þurfa aðhald, gagnrýni og eftirlit með störfum sínum því enginn er svo fullkominn að hann verðskuldi ekki gagnrýni á störf sín, ákvarðanir og gjörðir. Beinskeytt gagnrýni er því hreinlega nauðsynleg, því flestum er sem betur fer ljóst hver þróun mála verður þar sem gagnrýni er talin óæskileg eða er kveðin í kútin. Mankynssagan geymir ótal dæmi um slíkt og við þurfum ekki að líta langt til að sjá hvaða afleiðingar slíkt hefur í för með sér.

Eyjamenn hafa sem betur fer haft bein í nefinu í gegnum tíðina til að takast hraustlega á um hin ýmsu málefni og menn hefur greint á um leiðir og stefnur í þeim efnum sem oft hafa kostað átök en til allra heilla hefur þetta í gegnum tíðina fært samfélagið fram á við með nokkuð góðum árangri í áranna rás.

Gagnrýni er ekki óþarft nöldur
Á því kjörtímabili sem nú er senn á enda hefur allt í einu orðið einhver breyting á. Gagnrýni er allt í einu af hinu illa og réttmæt gagnrýni virðist allt að því litin hornauga. Sveit skipuðum einhverskonar Varðhundum valdsins hefur tekið sér stöðu á samfélagsmiðlum og er fljót til varnar ef gagnrýni er beint að meirihluta bæjarstjórnar og ákvörðunum hans. Slík gagnrýni er þá oftast afgreidd af Varðhundunum sem neikvæðni eða niðurrif. Ástæðulaust nöldur, án þess að taka efnislega umræðu um málið. Síðan er talað niður til þeirra sem leyfa sér að gagnrýna og svo er kallað eftir því að öll dýrin í skóginum séu vinir og vinni saman án gagnrýni. Það sé rétta leiðin.

Þetta hefur örugglega haft áhrif því ég heyri á fólki að það segist veigra sér við að hafa skoðanir eða láta þær í ljósi, séu þær ekki að skapi valdhafanna, því það muni fá að gjalda skoðanna sinna. Finnst einhverjum að slík staða sé bara í lagi?

Varðhundar á netvappi
Minnihuti bæjarstjórnar hefur, að mínu mati, farið ótrúlega mjúkum höndum um meirihlutann og ákvarðanir hans á líðandi kjörtímabili, þó svo að fjölmörg mál hafi komið upp sem vert hafi verið að fylgja mun fastar eftir en gert hefur verið. Því það er svo sannarlega af nógu að taka í þeim efnum.

Þau skipti sem bæjarfulltúar minnihlutans hafa „leyft“ sér að gagnrýna ákvarðanir, sem hafa klárlega verið gagnrýniverðar, eru Varðhundarnir fljótir að spanngóla og kvarta undan „neikvæðninni“ og „nöldrinu“. Ekki fer mikið fyrir umræðu um málefnin sem gagnrýnd eru heldur reynt að afgreiða gagnrýnina sem óþarft nöldur sem eigi engann rétt á sér.

Færu verkalýðsforingjarnir að verja SA?
Mér hefur þótt merkilegt að sjá að meðal þeirra Varðhunda, sem yfirleitt fyrstir góla til varnar sitjandi meirihluta, skuli vera fólk sem er í forsvari  félags sem gæta á hagsmuna og réttinda félagsmanna sinna gagnvart bæjaryfirvöldum. Það er kannski réttara að tala um að það sé stórfurðulegt frekar en merkilegt að verða vitni að slíku.

Sér einhver fyrir sér að Sólveig Anna, Vilhjálmur Birgisson eða Ragnar Þór sitji í startholunum 24/7 með lyklaborðiðí skotstöðu til að kveða þá í kútinn sem leyfa sér að gagnrýna Samtök atvinnulífsins? Ég held afar fáir geti ímyndað sér það en slíkt væri alveg á pari við það sem maður hefur verið að horfa á í Eyjum síðustu misserin.

Sannir leiðtogar hlaupa ekki fyrstir í skjól
Það þarf og á að gagnrýna ákvarðanir valdhafa. Gagnrýni er nauðsynleg og á alltaf rétt á sér og það er þeirra sem kosnir eru að svara fyrir þá gagnrýni sem að þeim er beint. Þeir taka ákvarðanirnar, ekki aðrir. Sannir leiðtogar eru leiðtogar í blíðu jafnt sem stríðu. Í mótbyr sem meðbyr. Sannir leiðtogar sýna sig ekki bara á sólarstundum. Þeir taka vindinn í fangið og höggin á kassann ef þannig viðrar en hlaupa ekki undir þiljur þegar gefur á. Sannir leiðtogar láta ná í sig þegar á móti blæs og erfið mál koma upp. Þeir svara fyrir ákvarðanir sínar en láta ekki embættismenn sitja uppi með að svara fyrir misvitrar ákvarðanir sínar og mistök. Sannir leiðtogar hlaupa ekki í felur þegar sótt er að í þeirri von að Varðhundarnir sjái um að afgreiða gagnrýnina, sem að þeim er beint, sem óþarfa væl og blása hana út af borðinu áður en þeir skríða úr holu sinni fram í dagsljósið á ný.

Þannig eru sannir leiðtogar.
Grímur Gíslason

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.