Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út sína fyrstu stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Ásmundur Einar Daðason kynnti stefnuna við setningu á ráðstefnunni Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2022 – Tækifæri og áskoranir í nýju landslagi.
Hér er um að ræða ákveðin tímamót í sögu málaflokksins og vegvísir til framtíðar um það sem mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst leggja áherslu á til að styðja við félags- og tómstundastarf. Aðgerðir byggðar á stefnunni miða að þvíað tryggja öllum börnum og ungmennum fjölbreytt og framúrskarandi tómstunda- og félagsstarf með virka þátttöku að leiðarljósi.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:
„Það er verkefni okkar allra að búa öllum börnum og ungmennum aðstæður sem gerir þeim kleift að þroskast og blómstra enda er hagsæld samfélagsins fólgin í því.“
Fram undan eru margvísleg verkefni sem stuðla eiga að framgangi stefnunnar. Ber þar hæst endurskoðun æskulýðslaga og þarfagreining um þjónustuvettvang tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Brýnt er að tengja málaflokkinn enn frekar við farsældarlöggjöfina til að styðja við samþættingu þjónustu við börn og ungmenni og nýta þá þekkingu og reynslu sem er til staðar.
Gildistími stefnunnar er til ársins 2030 með aðgerðaáætlun til þriggja ára í senn. Fram undan eru spennandi tímar í málefnum barna og ungmenna.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.