Eygló segist ganga út frá því að taka þriðja sæti á lista Framsóknarmanna og gefur lítið fyrir þær bollaleggingar að taka inn utanaðkomandi aðila á listann.
“�?etta er algjörlega óeðlilegt að taka inn einhvern aðila sem tók ekki baráttuna með okkur og var ekki í kjöri, að nú eigi að fara stilla viðkomandi aðila upp á listanum. �?á hefðum við öll átt að sitja og bíða eftir símtalinu um það að fá sæti á listanum.”
Kemurðu til með að draga þig út af listanum ef niðurstaðan verður að taka inn utanaðkomandi aðila í þriðja sætið?
“�?g hef í það minnsta tjá þessa skoðun mína og ég hef ekki trú á að þetta verði samþykkt. En ef svo færi þá er það vissulega eitt af því sem ég þarf að íhuga,” sagði Eygló í samtali við Ríkissjónvarpið.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.