ÍBV á möguleika á að koma sér af fallsvæðinu þegar Eyjamenn mæta Leikni í fjórtándu umferð Bestu deildar karla á Domusnova-vellinum í dag kl. 14.00. Leiknir er með tíu stig eins og FH en ÍBV og ÍA eru með átta stig en ÍBV er sæti ofar á hagstæðara markahlutfalli.
Það er því mikið undir fyrir bæði lið en miðað við síðustu leiki á ÍBV góða möguleika á sigri. Það stóð tæpt gegn Val hér heima en strákarnir sýndu karakter sem skilaði ÍBV þremur stigum. Áður hafði liðið staðið í KA sem er í þriðja sæti deildarinnar og er ÍBV annað liðið sem náð hefur stigum af Breiðabliki sem trónir á toppi deildarinnar.
Það er mikið í húfi en tveir síðustu leikir Eyjamanna gefa von um hagstæð úrslit í Breiðholtinu í dag.
Staðan:
| L | Mörk | Stig | |
| Breiðablik | 13 | 38:14 | 34 |
| Víkingur R. | 13 | 31:18 | 28 |
| KA | 13 | 25:16 | 24 |
| Stjarnan | 13 | 24:17 | 23 |
| Valur | 13 | 22:21 | 20 |
| Keflavík | 13 | 24:23 | 17 |
| KR | 13 | 17:20 | 17 |
| Fram | 13 | 22:30 | 14 |
| FH | 13 | 16:23 | 10 |
| Leiknir R. | 13 | 11:22 | 10 |
| ÍBV | 13 | 15:26 | 8 |
| ÍA | 13 | 13:28 | 8 |




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.