Vestmannaeyjabæ heiðursgestur Menningarnætur 2023
Mikið hefur verið byggt í Vestmannaeyjum á síðustu árum og skortur á byggingalóðum.

Vestmannaeyjabær verður heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík 2023 í tilefni af 50 ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bauð Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, formlega á Menningarnótt 2023 í gær.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir það mikinn heiður og þakkaði fyrir boðið. „ Gosið á Heimaey hafði mikil áhrif á öllu landinu. Mikilvægt er að minnast gossins og áhrifanna sem það hafði. Að minnast þessara 50 ára tímamóta á Menningarnótt er afskaplega vel til fundið. Við munum kynna Eyjarnar og hina einu sönnu Eyjastemmingu” segir Íris.

Um árabil hefur tíðkast að bjóða völdum sveitarfélögum eða félagasamtökum að vera heiðursgestur á Menningarnótt. Heiðursgestir Menningarnætur í gegnum árin hafa meðal annars verið Ísafjörður, Akranes, Þórshöfn í Færeyjum, Blindrafélagið og nú síðast stuðningssamtökin Support for Ukraine Iceland.

Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og er haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst en þann dag árið 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi.  Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni.

Reykjavíkurborg fagnar þátttöku Vestmannaeyjabæjar á Menningarnótt 2023.

Nýjustu fréttir

Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.