Undirbúa aðgerðir gegn útgerðarmönnum

Fundur formanna aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands sem haldinn var í Vestmannaeyjum um helgina ítrekaði kröfugerð sína á hendur útgerðarmönnum í yfirstandandi kjaraviðræðum.

Í ályktun segir: „Krafa aðildarfélaganna er skýr um að sjómenn fái inn í kjarasamning sinn ákvæði um að útgerðin greiði 3,5% viðbótarframlag í lífeyrissjóði sjómanna með sama hætti og launafólk á almenna vinnumarkaðnum hefur þegar samið um við atvinnurekendur.

Jafnframt fái sjómenn sömu hækkanir á kauptryggingu sjómanna og aðra kaupliði og samið var um á almenna vinnumarkaðnum árið 2019. Fundurinn felur formanni Sjómannasambandsins að hefja undirbúning að aðgerðum gegn útgerðarmönnum, í samráði við aðildarfélögin, til að knýja á um lausn kjaradeilunnar milli sjómanna og útgerðarmanna.“

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.