Ragnar Mar nýr yfirþjálfari hjá ÍBV

Í byrjun ágústmánaðar auglýsti ÍBV eftir nýjum yfirþjálfara yngriflokka í fótbolta og barst mikill fjöldi umsókna í stöðuna.Ragnar Mar Sigrúnarson hefur verið ráðinn sem nýr yfirþjálfari og hóf hann störf undir lok síðustu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍBV.

Ragnar hefur verið þjálfari hjá HK undanfarin 12 ár. Hann er með BS gráðu í íþróttafræðum og meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.
Einnig hefur hann verið framhaldsskólakennari í íþróttum við Kvennaskólann í Reykjavík undanfarin ár. Áður hefur Ragnar Mar starfað sem forstöðumaður knattspyrnuskóla í fjölda ára, starfað sem hafnarvörður, í fiskvinnslu og verið sjómaður. En hann er frá Hellissandi á Snæfellsnesi og spilaði með Víking Ólafsvík til fjölda ára.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.