Brynjólfi VE lagt og áhöfn sagt upp

Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar hafa ákveðið að hætta að gera út Brynjólf VE-3 og leggja skipinu. Áhöfninni var tilkynnt þetta í gær og öllum skipverjum jafnframt sagt upp störfum. Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri segir tvær meginástæður vera fyrir þessari niðurstöðu:

„Við höfum annars vegar lent í tíðum bilunum með Brynjólf undanfarna mánuði með tilheyrandi truflunum í útgerð og kostnaði. Það sér ekki fyrir enda á þeim vandræðum. Þess vegna getum við ekki treyst því að rekstur skipsins gangi eðlilega fyrir sig framvegis enda skipið orðið gamalt og slitið.

Hins vegar hefur svo kvótaskerðingin í karfa áhrif. Við höfum einfaldlega ekki nægar aflaheimildir í karfa fyrir þau þrjú togskip sem við gerum út. Þetta er staðan og við henni þarf að bregðast. Við munum leitast við að útvega skipverjum á Brynjólfi pláss á öðrum skipum Vinnslustöðvarinnar eftir því sem unnt er.“

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.