Að fá fyrir ferðina

Íbúar á landsbyggðinni þurfa gjarnan að leita um langan veg eftir viðeigandi heilbrigðisþjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð. Til að koma til móts við þennan stóra hóp hefur verið sett reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggða og aðstandenda þeirra innanlands. Þar kemur m.a. fram að Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við tvær ferðir sjúkratryggðs á 12 mánaða tímabili, þegar um er að ræða nauðsynlega læknisferð, a.m.k. 20 km vegalengd á milli staða sem ekki er veitt í heimabyggð.

Sjúklingar þurfa að borga fyrir að fá endurgreitt
Í sömu reglugerð kemur fram að ætli fólk að sækja endurgreiðslu vegna slíkra ferða þurfi læknir í heimabyggð að staðfesta að hann hafi þurft að vísa sjúkratryggðum til meðferðar utan heimabyggðar því þjónustan var ekki fyrir hendi. Fyrir slíkt vottorð þarf sjúklingur að greiða 1.511 krónur sem er t.d. um 12% af þeirri endurgreiðslu sem undirrituð á rétt á vegna einnar læknisferðar til Reykjavíkur. Já þú last rétt, við íbúar landsbyggðarinnar þurfum að borga fyrir að fá endurgreiðslu að hluta á nauðsynlegum læknisferðum.

Drögum úr óþarfa álagi á heilsugæslur
Á landsbyggðinni er víða mikill mönnunarvandi á heilsugæslum, fáir læknar, mikið álag, erfitt að fá tíma, þetta eru allt óþægilega kunnugleg stef. Hvernig væri að við myndum sleppa heilsugæslulæknum við þessu óþarfa áreiti, sjúklingum við óþarfa biðstofudvöl og nægjanlegt væri að sérfræðilæknir myndi staðfesta komu og þá um leið nauðsyn þjónustunnar. Drögum úr kostnaði og óþægindum fyrir þjónustuþegann um leið og við drögum úr álagi á heilsugæsluna, svokallað ,,win-win”.

Letjandi fyrirkomulag hentar ríkiskassanum vel
Þegar óskað er eftir endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar þarf umsækjandi að skila inn til umboðs sýslumanns í sinni heimabyggð eftirfarandi:

  • 1511 kr. vottorðinu frá heilsugæslulækni í heimabyggð
  • farseðlum vegna flugs, ferju, áætlunarbíls eða almenningssamgangna en endurgreitt eru ⅔ af
  • slíku fargjaldi
  • Greiðslukvittunum vegna leigubíls og vegtolla
  • Greiðslukvittunum fyrir eldsneytiskaup vegna ferða á einkabíl
  • staðfestingu á komu til læknis

Þessar gjarðir þarf landsbyggðarfólk að hoppa í gegnum til að fá endurgreiðslu fyrir þann ójafna aðgang að heilbrigðisþjónustu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa þó viðurkennt með þessari reglugerð að landsbyggðin búi sannarlega við. Eðli málsins samkvæmt er hlutfall þeirra einstaklinga sem eiga rétt á niðurgreiðslu en sækja hana ekki vegna flækjustigs væntanlega nokkuð hátt. Sem kemur sér vel fyrir ríkiskassann. Það má nú ekki vera of einfalt að sækja sér eitthvað sem við eigum samt rétt á.

Lausnirnar eru til, tæknin og getan er til, en það er spurning um viljann
Vegferð stafrænnar umbyltingar hjá íslenska ríkinu hefur ekki farið framhjá neinum og í ágúst á þessu ári fór vefur Sjúkratrygginga Íslands inn á island.is sem var afar jákvætt skref. Taka þarf fleiri og stærri skref í þessa átt, m.a. með því að færa réttindagátt sjúkratrygginga þar inn, en ekki síður er mikilvægt skref að einfalda leiðina að því að sækja endurgreiðslur ferðakostnaðar í gegnum einfalda og aðgengilega stafræna þjónustugátt ríkisins.

Auðveldum endurgreiðslu ferðakostnaðar
Íbúar landsbyggðar hafa þurft að þola sífellt skertara aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu í gegnum árin, skurð- og fæðingarstöðum hefur fækkað og sérhæfð þjónusta færst í auknum mæli á stórhöfuðborgarsvæðið og okkur gert að fara þangað. Auðveldum því fólki sem þarf á þjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð að sækja hana. Einföldum regluverkið, nýtum okkur tæknina og sleppum óþarfa milliliðum og kostnaði. Ég skora á heilbrigðisráðherra í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands að stíga inn í nútímann, draga úr hindrunum, leysa flækjurnar og gera okkur landsbyggðarfólkinu kleift með einföldum og hagkvæmum hætti að sækja til baka þann kostnað sem við höfum sannarlega greitt.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Sjúkraþjálfari og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.