Áhugaverður fundur Rannís í ÞV
Fundurinn var vel sóttur.

„Aðsókn fór langt fram úr mínum björtustu vonum og gott fyrir okkur að fá þetta tækifæri til að kynnast þeim möguleikum sem eru í boði hjá Rannís,“ sagði Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja sem stóð fyrir fundinum sem haldinn var í gær.

Um var að ræða kynningarfund þar sem Arnþór Ævarsson, Davíð Þór Lúðvíksson og Sigurður Snæbjörnsson, sérfræðingar á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís voru til viðtals og kynntu annars vegar styrktarflokka Tækniþróunarsjóðs og hins vegar skattafrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna.

„Rannís opnar fyrirtækjum og einstaklingum möguleika  með styrkjum til rannsóknar- og þróunarverkefna. Var þeim gerð góð skil á fundinum og einnig skattafrádrætti sem fyrirtækjum stendur til boða. Er það sannfæring mín að við eigum eftir að sjá árangur af fundinum því Eyjamenn eru í eðli sínu frumkvöðlar og hugsa til framtíðar. Gott dæmi um það er Laxey sem við sjáum dafna og þróast með hverjum deginum,“ sagði Hörður.

 

Nýjustu fréttir

Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.