Ákvörðun um Þjóhátíð mun liggja fyrir í síðasta lagi 14. ágúst

“Allar götur síðan stjórnvöld gáfu út áætlanir um afléttingar allra innanlandstakmarkana hefur ÍBV-íþróttafélag unnið að því hörðum höndum að halda Þjóðhátíð og er sú vinna á lokametrunum enda Þjóðhátíð fyrirhuguð um næstu helgi,” á þessum orðum hefst yfirlýsing sem Hörður Orri Grettisson sendi út fyrir hönd Þjóðhátíðarnefndar ÍBV nú rétt í þessu.

Þjóðhátíð 2021 frestað
Þjóðhátíð er gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir barna- og unglingastarf ÍBV og er ein ástæða þess að félagið getur haldið úti jafn öflugu starfi í litlu samfélagi og raun ber vitni. Það er okkar trú að hægt verði að halda hátíðina í einhverri mynd síðar í sumar. Ákvörðun um það mun liggja fyrir í síðasta lagi 14. ágúst.

Endugreiðsla miða
Vinna við endurgreiðslukerfi er í fullum gangi og verður vel kynnt þegar endurgreiðslur munu hefjast í upphafi ágústmánaðar. Fólk stendur frammi fyrir þremur kostum; a) Að fá miðann endurgreiddan, b) að styrkja ÍBV um andvirði miðans, og c) að flytja miðann yfir á Þjóðhátíð 2022.

Herjólfur
Þeir viðskiptavinir sem eiga bókaða herjólfsmiða í gegnum dalurinn.is og hafa áhuga á að ferðast til og frá Eyjum um Verslunarmananhelgina eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að gera nýja bókun. Endurgreiðslur á herjólfsmiðum sem keyptir voru á dalurinn.is munu fylgja beiðnum um endurgreiðslu á þjóðhátíðarmiðanum.

Brekkusöngur í streymi
Það gleður okkur að tilkynna að öll dagskrá sunnudagskvöldsins mun fara fram sem streymisviðburður sunnudaginn 1. ágúst. Hljómsveitin Albatross mun stjórna skemmtuninni ásamt einvalaliði söngvara áður en Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrir svo hinum eina sanna Brekkusöng sem allir geta tekið þátt í hvar sem þeir eru í heiminum. Miðasala er hafin á tix.is.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.