Alheimshreinsunardagur í næstu viku

::Umhverfis Suðurland hvetur sunnlensk fyrirtæki til þess að taka þátt í Alheimshreinsunardeginum

Þann 15. september verður haldinn í fyrsta skipti Alheimshreinsunardagurinn sem leggur áherslu á að allir íbúar þessarar jarðar nýti daginn til þess að hreinsa sitt umhverfi, sjá nánar á heimasíðu Landverndar www.landvernd.is/sidur/alheimshreinsun-thann-15-september-2018.

Í tilefni þessa dags hvetur verkefnið Umhverfis Suðurland, sunnlensk fyrirtæki / stofnanir og starfsmenn þeirra til þess að taka þátt í viðburði sem gengur út á að fara í hreinsunarátak í og við sínar byggingar og/eða athafnasvæði þann 14. september nk.

Til þess að fylgjast með viðburðinum er hægt að skoða myllumerkið #umhverfissuðurland inn á síðu verkefnisins www.umhverfissudurland.is og www.facebook.com/UmhverfisSudurland

Plastlaus september
Samhliða Alheimshreinsunardeginum er í gangi verkefnið Plastlaus september, sem er árlegt árverkni átak og því er plast þema þess mánaðar. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Hver Íslendingur skilur eftir sig um 40 kíló af umbúðarplasti á ári.

Umhverfis Suðurland vonast til þess að Sunnlendingar verði áberandi hluti af þessum átaksverkefnum með virkri þátttöku enda eitt af markmiðunum að Suðurland verði fremst í flokki landshlutanna þegar kemur að umhverfismálum og hreinu umhverfi.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.