Allir velkomnir á aðventukvöld Aglow
aglow
Frá jólafundi Aglow. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Aðventan er hafin og gott að stilla hugann og gefa sér tíma til að íhuga innihald hennar. Aðventukvöld verður í kvöld þar sem við beinum sjónum okkar að jólaboðskapnum. Í kvöld 3. desember hittumst við  í safnaðarheimili Landakirkju kl. 19.30. Veglegar veitingar verða í boði og um kl. 20.00 mun Einar Igarashi nemandi Kittyar leika tónverk – Unnur og Simmi leiða almennan söng og syngja fyrir okkur – Vera Björk Einarsdóttir les jólasögu – Sr. Viðar Stefánsson flytur hugvekju.

Kirkjukórinn undir stjórn Kittyar mun syngja og svo syngjum við saman ,,Heims  um ból” í lokin.  ,,Allt varð þetta til þess að rætast skyldi það sem Drottinn lét spámanninn boða:,, sjá, yngismær mun þunguð verða og fæða son og lætur hann heita Immanúel; það þýðir guð með oss “ Matteus 1. 22-23.

Allir eru velkomnir í kvöld, konur og karlmenn !

Stjórn Aglow í Eyjum óskar ykkur öllumgleðilegra jóla með bæn um gott komandi ár. Fyrsta Aglow samveran  á komandi ári verður 7. Janúar 2026, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.