Allt að verða klárt fyrir næsta úthald
Árni Gunnarsson, Sveinn Ásgeirsson, Björn Stefán, Þorsteinn Ólafsson og Hafsteinn Valdimarsson. Ljósmynd/vsv.is

Eins og gefur að skilja hefur loðnubrestur margvísleg áhrif á allt samfélagið. Einn angi af því er að uppsjávarskipin eru meira við bryggju og nýta áhafnirnar tímann til að sinna viðhaldi um borð.

Þorsteinn Ólafsson, háseti á Gullberg VE segir léttur í bragði – í samtali við fréttaritara VSV – að hann sé kominn í þá stöðu að vera gamli kallinn á dekkinu. Aðspurður um hve lengi hann sé búinn að vera á Gullberginu segir hann að þar hafi hann verið síðan Sighvati VE var lagt. „Þar áður var ég á Ísleifi. Ætli ég sé ekki búinn að vera hjá fyrirtækinu í um það bil 30 ár.”

Spurður um hvað þeir hafi verið að gera þennan tíma svarar hann að þeir séu búnir að vera að dytta að ýmsu. „Það er verið að rústberja og mála. Við leggjum okkur fram um að gera skipið fínt fyrir næsta úthald.”

Loðnuleysið hefur áhrif á allt og alla

Það hlýtur að hafa mikil áhrif þegar það vantar heila loðnuvertíð inn í heildarmyndina?

Já, það er um það bil einn þriðji af árstekjunum, ef að það er meðalvertíð. Ég tala nú ekki um þegar þetta er eins og núna tvö ár í röð sem loðnan brestur. Þetta hefur áhrif á allt og alla, m.a. á bæjarfélagið.

Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort allt væri þá ekki að verða upp á 10 um borð. „Jú, við erum að verða klárir. Nótin á eftir að fara í land og pokar um borð og þá erum við klárir í næsta úthald.”

Sem verður hvenær og hvert?  Við förum á kolmunna næst, niður við Færeyjar. Verðum þar eitthvað fram í maí. Þá er önnur pása, væntanlega fram í miðjan júní þegar makrílveiðarnar hefjast, segir Þorsteinn í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.