Andstæðingar ÍBV frá Potrúgal og Luxemborg
Ljósmynd: Sigfús Gunnar
Bæði karla og kvennalið ÍBV í handbolta voru í pottinum þegar dregið var í Evrópukeppnum EHF í höfuðstöðvum evr­ópska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins í morgun.
Í Evrópubikarkeppni kvenna verða andstæðingar bikarmeistara ÍBV í fyrstu umferð Colegio de Gaia frá Portúgal. Portúgalska liðið var dregið á undan og á þar með heimaleik á undan ef leikið verður heima og að heiman. Fyrsta umferð Evrópubikarkeppninnar verður leikin helgarnar 23./24. september og 30. september /1. okótóber.
Í Evrópubikarkeppni karla mæta Íslandsmeistarar ÍBV, HB Red Boys Differdange frá Lúxemborg í 2. umferð. Önnur umferð fer fram helgarnar 14. og 15. október og 21. og 22. október.

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.