Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Arnór Viðarsson í leik með Karlskona. Mynd/Aðsend

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson átti stórleik þegar Karlskrona vann 32-30 heimasigur á nýliðum Lugi í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld. 

Arnór skoraði sjö mörk úr átta skotum og lagði upp sex mörk til viðbótar fyrir liðsfélaga sína. Hann kom því með beinum hætti að 13 mörkum liðsins. Frammistaðan skilaði honum titlinum maður leiksins.

Sigurinn var sá annar í röð hjá Karlskrona í deildinni og lyfti hann liðinu upp úr fallsætunum. Þeir sitja í 10. sæti deildarinnar með fjögur stig.

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.