Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Aron Lucas Vokes í leik með ÍBV gegn Val. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Aron Lucas Vokes, leikmaður ÍBV í fótbolta, verður frá keppni um óákveðinn tíma eftir að hafa slitið aftara krossband í hné í tapi liðsins gegn Þór í síðustu viku. Fótbolti.net greindi frá í dag.

Aron er 22 ára gamall sóknarmaður og gekk til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu, Selfossi, í sumarglugganum. Hann kom til Eyjamanna á lánssamningi sem gildir út tímabilið, en ÍBV hefur jafnframt kauprétt á leikmanninum.

Aron náði að leika átta leiki fyrir ÍBV á tímabilinu og skoraði eitt mark áður en meiðslin settu strik í reikninginn.

Ekki er enn vitað hversu langan tíma Aron verður frá keppni vegna meiðslanna, en endurhæfing eftir slit á aftara krossbandi í hné getur verið löng.

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.