Ársrit fótboltans komið út

Út er komið ársrit fótboltans fyrir fótboltaárið 2020. Lesið með að smella hér. Blaðið er árleg útgáfa og í ár má finna fjölbreytt og áhugavert efni. Rætt er við þjálfara, leikmenn  og stjórnarmenn um tímabilið sem leið, forvitnast um hvernig var að halda krakkamótin á COVID tímum, Ingó veðurguð segir frá hvernig er að eiga Þjóðhátíðarlag fyrir hátíð sem aldrei varð, Glenn lagði skóna á hilluna, þriðju deildar stjarna komin í þjálfarahóp ÍBV, glæsilegu fótboltasumri KFS gerð skil og ítarleg yfirferð yfir fótboltasumar yngri flokka. Ársritið er rafrænt í ár, rétt eins og í fyrra. Til gamans má geta að lestur á ársritinu í fyrra var geysilega mikill enda býður rafræn útgáfa upp á að ÍBV-arar út um allan heim geta lesið blaðið.

Knattspyrnuráð ÍBV vill óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir stuðninginn á þessu skrýtna ári sem er að líða. Þá vill ráðið sérstaklega þakka bakhjölrum og styrktaraðilum fyrir stuðnginginn á þessu erfiða ári. Áfram ÍBV!

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.