Af hverju er heita vatnið svona dýrt?

Undanfarna mánuði hef ég verið að skoða gjaldtöku fyrir húshitun í Vestmannaeyjum og bera hana saman við sambærileg veitusvæði annars staðar á landinu. Ég geri það ekki af fræðilegum áhuga einum saman, heldur vegna þess að hér er um að ræða grunnþjónustu, sem allir verða að greiða fyrir, óháð tekjum eða aðstæðum. Í stuttu máli […]
Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri

Ég hef ákveðið að taka ekki þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem haldið verður föstudaginn 13. mars nk. Ég gegni mörgum öðrum hlutverkum og tel nauðsynlegt á þessum tímapunkti, eftir 8 ár í bæjarmálunum að ég þurfi að huga betur að þeim. Ég hef fulla trú á flokknum hér í Eyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum […]
Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki

Vegna orða og efasemda Páls Magnússonar – Ef að hugur og vilji eru til staðar þá er leiðin greiða og allir velkomnir. Það kom mér sannarlega á óvart að sjá viðbrögð Páls Magnússonar við þeim orðum sem ég lét falla í samtali við Eyjafréttir um að prófkjör gæti verið góð leið til að sameina sjálfstæðismenn […]
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum var haldinn í síðustu viku. Á fundinum var Grímur Gíslason kjörinn nýr formaður í stað Jarls Sigurgeirssonar, sem verið hefur formaður sl. 8 ár en Jarl gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður. Í samtali við Eyjafréttir sagði Grímur að nýja embættið legðist vel í sig og […]
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta

Á Íslandi er jörðin sífellt á hreyfingu. Hún breytist, rifnar og flæðir – oft utan þeirra marka sem mannlegt skipulag gerir ráð fyrir. Í slíkum aðstæðum verður ljóst að búseta er ekki varanlegt ástand, heldur stöðug aðlögun að öflum sem eru bæði skapandi og eyðandi. Reynslan er ekki einsdæmi. Í Japan, líkt og á Íslandi, […]
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025

„Tilnefningin Eyjamaður ársins er veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt sitt að mörkum og verið áberandi í samfélaginu hér í Eyjum. Tveir einstaklingar hlutu viðurkenninguna í ár, hjónin Hjalti Kristjánsson læknir og Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem eru Eyjafólk ársins að mati ritstjórnar Eyjafrétta,“ sagði Annika Vignisdóttir, aðstoðarritstjóri Eyjafrétta, við afhendingu Fréttapíramídanna föstudaginn 16. janúar […]
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu

Dagur sorgar í sögu Vestmannaeyja – Alls fórust 20 – Flestir tengdir Eyjum Þennan dag fyrir 75 árum, miðvikudaginn 31. janúar 1951 fórst flugvélin Glitfaxi í eigu Flugfélags Íslands í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli. Vélin var að koma frá Vestmannaeyjum og með henni fórust 20 manns, 17 farþegar og þriggja manna áhöfn. Tvær vélar í áætlunarflugi […]
Grjótharðir Glacier Guys í Eyjafréttum í dag

„Munurinn á Glacier Guys og Iceguys er að þeir hirða peninga á meðan við gefum peninga,“ segir Hanni harði, aðalsprautan í drengjabandinu Glacier Guys sem hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka túlkun á þekktum lögum. Ekki eru myndböndin síðri en allt er tekið upp í bíl fyrirtæk isins og sá harði að sjálfsögðu undir stýri. […]
Handverksmenn sýna í Einarsstofu

Í dag er sýning á verkum fjögurra handverksmanna í Einarsstofu í Safnahúsi. Fjölbreytt sýning og skemmtileg og þar er hægt kaupa fallega hluti. Þeir eru Kristmann Kristmannsson múrarameistari, séra Viðar Stefánsson prestur Landakirkju, Daníel Örn Virknir Jóhannesson gullsmiður og Viktor Þór Reynisson. Daníel Örn og Viktor Þór eru báðir fæddir og uppaldir í Vestmannaeyjum og fluttir […]
Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins

„Það voru bjartsýnir Eyjamenn sem horfðu fram á veginn við áramót 1972 til 1973. Sjórinn hafði þá verið gjafmildur og einnig kaupendur fisksins. Í nýrri og enn stærri landhelgi, þá nýstækkaðri úr 12 sjómílum í 50, höfðu Vestmanneyingar veitt vel. Árið 1972 áttu Vestmanneyingar 8,4% af útflutningsverðmæti landsmanna. Nóg atvinna var í plássinu og íbúarnir aldrei verið fleiri, eða […]
Inga Sæland sér ljósið í Neistanum í Vestmannaeyjum

Inga Sæland, sem tekur við embætti mennta- og barnamálaráðherra í dag sagði á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að menntakerfið hefði brugðist og vill fara finnsku leiðina og innleiða verkefnið Kveikjum neistann, sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum hefur fylgt með frábærum árangri frá árinu 2022. Mbl.is birti frétt um viðtalið við Ingu. Sagði Inga að tæplega helmingur drengja útskrifast úr […]
Er glasið ekki örugglega hálffullt?

Um áramót – Hörður Baldvinsson – Framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Það er mikill kostur að hafa bjartsýnina að leiðarljósi og reyna að vera jákvæð, þrátt fyrir að stundum séu ytri aðstæður erfiðar. Við hjá Þekkingarsetri Vestmannaeyja erum bjartsýn á framtíðina og erum þess fullviss að í Vestmannaeyjum sé fullt af frábæru fólki sem vill eiga heima hér, […]
Fjölmenni á fundi Miðflokksins

Miðflokksmenn, Sigmundur Davíð, Karl Gauti og Snorri Másson mega vera ánægðir með aðsókn á fund þeirra á Háaloftinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Milli 120 og 130 mættu á fundinn sem er sá fjölmennasti sem einn stjórnmálaflokkur hefur haldið í Eyjum í mörg ár. Þeir fóru yfir helstu stefnumál flokksins í innflytjendamálum, ríkisfjármálum, skattagleði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur […]
Mikið áunnist – Margt framundan

Um áramót – Helga Jóhanna Harðardóttir – Bæjarfulltrúi Eyjalistans Það er margt spennandi sem hefur átt sér stað á árinu hjá bænum. Það hafa kollegar mínir í bæjarstjórn bent á hér í greinum á undan mér, en ég ætla að verða við beiðni Eyjafrétta og koma með nokkra punkta. Nú hafa nýir rafstrengir verið lagðir, sem var […]
Nýtt ár, ný tækifæri

Um áramót – Margrét Rós Ingólfsdóttir – Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Á vettvangi bæjarmálanna einkenndist árið 2025 af baráttu bæjarstjórnar við ríkisvaldið og baráttu gegn hækkandi skattheimtu og álögum á fyrirtæki og á vinnandi og venjulegt fólk. Þessi aukna skattheimta er óþolandi og kemur mest niður á einmitt, venjulegu fólki. Á meðan ríkir algjört skilningsleysi á málefnum Vestmannaeyja. Vatnslögnin, […]
Krafturinn og samheldnin er allt sem þarf

Um áramót – Stefán Friðriksson – Forstjóri Ísfélagsins Um áramót er gott að líta um öxl og huga því næst að framtíðinni. Í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski áraði nokkuð vel og þó að loðnuvertíðin hafi verið með allra smæsta móti má segja að góð makrílveiði og ágætis afurðaverð í öllum uppsjávartegundunum hafi skipt miklu máli. Þá hefur […]
Sandra og Daníel trúlofuð

Fyrirliði ÍBV og íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, Sandra Erlingsdóttir og handboltamaðurinn Daníel Ingason trúlofuðu sig á nýársdag, 1. janúar. Frá þessu greinir Sandra á samfélagsmiðlum. Sandra og Daníel gengu til liðs við ÍBV síðasta haust en þau trúlofuðu sig í Stuttgart í Þýskalandi þar sem þau bjuggu áður en þau fluttu til Vestmannaeyja. Sandra spilaði þar með Metzingen og Daníel með Balingen. Þau hafa […]
Spennandi ár að baki og mikið fram undan

Það er óhætt að segja að fólk sé farið að iða í skinninu fyrir handboltanum bæði hér heima og erlendis. Konurnar byrja slaginn hér heima eftir HM-hlé í desember og strákarnir í landsliðinu hefja leik á Evrópumótinu sem er haldið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í F-riðli mótsins þann 16. janúar gegn Ítalíu. Ásamt Íslandi og Ítalíu eru […]
Sleggjuleið forsætisráðherra til að lækka verðbólguna

Yfir 300 prósenta hækkun og afleit staða fyrir alla aðila „Þetta er sennilega sleggjuleið forsætisráðherra til að lækka verðbólguna. Sennilega munu fiskimjölsverksmiðjurnar ekki nota rafmagn sem fer um þennan streng og ég á von á að frystihúsin hætti að nota rafmagn frá þessari línu,“ segir Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta með meiru á Fésbókarsíðu í […]
Vilhjálmur í oddvitaslag í Reykjanesbæ

„Eftir fjölda áskorana og mikla umhugsun með mínum nánustu hef ég ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í komandi prófkjöri, sem fram fer 31. janúar,” segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og ritari flokksins á Fésbókarsíðu sinni. „Fyrir tveimur árum breyttist líf okkar fjölskyldunnar skyndilega þegar við […]