Þegar þú lendir í svona ferðu að hugsa hlutina allt öðruvísi

Það er bara mikilvægt að tala, tjá sig og opna sig bara. Af því að þú færð frekar stuðning heldur en hitt og ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta.Eyjamaðurinn og stórkokkurinn Einar Björn Árnason, Einsi kaldi greindist með lungnakrabbamein í byrjun árs 2021. Hann er þakklátur fyrir […]
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu

Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí nk. Prófkjörið verður föstudaginn 13. mars og stefnt er á að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu á morgun, þriðjudaginn 3. mars í Ásgarði. Hægt verður að kjósa milli 16:00 til 18:00 virka daga og kl. 13:00 til 15:00 um helgar. Trausti Hjaltason opnaði kosningaskrifstofu í […]
Davíð Oddsson fallinn frá

Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðast ritstjóri Morgunblaðsins varð bráðkvaddur á heimili sínu í gær, 1. mars. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. „Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr […]
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu

Áhersla á endurnýtingu og sjálfbærni Í gær, þann 28. febrúar var haldið skapandi námskeið í Hvíta húsinu þar sem fatahönnuðurinn Selma Ragnarsdóttir leiddi þátttakendur inn í heim endurnýtingar. Á námskeiðinu var lögð áhersla á að endurnýta og laga það sem við eigum nú þegar – gefa flíkum nýtt líf í stað þess að henda þeim. […]
Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins

Hröð uppbygging – Atvinnuþróun og nýsköpun – Öflugir fjárfestar – Um 60% hluthafa í Vestmannaeyjum – Sérhæfð störf – Sjúkdómaöryggi – Sjálfbær framleiðsla – Hágæða framleiðsla – Ný höfn nauðsyn Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, […]
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki

„Vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Stutta útgáfan: Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitastjórnarkosningar,“ segir Óskar Jósúason upplýsingafulltrúi Laxeyjar á Fésbókarsíðu sinni í dag. „Lengri útgáfan: Ég hef ávallt verið hrifinn af prófkjöri. Það gefur öllum jafnt tækifæri til að setja nafn sitt og […]
Íris kveður H-listann með þakklæti

„Síðustu átta ár hafa þroskað mig mikið. Þau hafa reynt á en líka veitt mér styrk og mikla gleði. Ómetanleg reynsla situr eftir og nýir vinir og samstarfsfélagar bæst í hópinn,“ segir Íris Róbertsdóttir í færslu á Fésbókarsíðu sinni í gær. Um leið tilkynnir Íris að hún hafi ákveðið að gefa ekki kost á mér […]
Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn

„Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þetta staðfestir Íris í samtali við fréttastofu RÚV. Íris segist þó ekki ætla í prófkjör fyrir flokkinn í vor, en framboðsfrestur rann út klukkan sex í kvöld. Þetta verða að teljast mikil tíðindi en fyrr í dag var á félagsfundi Fyrir […]
Páll gefur ekki kost á sér

Páll Magnússon, bæjarfulltrúi H-listans og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann segist stíga til hliðar sáttur og stoltur af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins á undanförnum árum. Pistil Páls má lesa hér að neðan. Góðir […]
Forsetahjónin ánægð með heimsókn til Eyja

„Hér í Eyjum er mjög sérstakt andrúmsloft,“ heldur Halla áfram. „Hugmyndaauðgi er mikil, eins og við sáum dæmi um í Þekkingarsetrinu. Krafturinn í uppbyggingu Laxeyjar hefur líka verið einstakur. Þar er mikill metnaður lagður í reksturinn og sjálfbærni höfð að leiðarljósi, til dæmis með því að endurnýta vatnið hvað eftir annað. Við fórum einnig í […]
Af hverju er heita vatnið svona dýrt?

Undanfarna mánuði hef ég verið að skoða gjaldtöku fyrir húshitun í Vestmannaeyjum og bera hana saman við sambærileg veitusvæði annars staðar á landinu. Ég geri það ekki af fræðilegum áhuga einum saman, heldur vegna þess að hér er um að ræða grunnþjónustu, sem allir verða að greiða fyrir, óháð tekjum eða aðstæðum. Í stuttu máli […]
Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri

Ég hef ákveðið að taka ekki þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem haldið verður föstudaginn 13. mars nk. Ég gegni mörgum öðrum hlutverkum og tel nauðsynlegt á þessum tímapunkti, eftir 8 ár í bæjarmálunum að ég þurfi að huga betur að þeim. Ég hef fulla trú á flokknum hér í Eyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum […]
Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki

Vegna orða og efasemda Páls Magnússonar – Ef að hugur og vilji eru til staðar þá er leiðin greiða og allir velkomnir. Það kom mér sannarlega á óvart að sjá viðbrögð Páls Magnússonar við þeim orðum sem ég lét falla í samtali við Eyjafréttir um að prófkjör gæti verið góð leið til að sameina sjálfstæðismenn […]
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum var haldinn í síðustu viku. Á fundinum var Grímur Gíslason kjörinn nýr formaður í stað Jarls Sigurgeirssonar, sem verið hefur formaður sl. 8 ár en Jarl gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður. Í samtali við Eyjafréttir sagði Grímur að nýja embættið legðist vel í sig og […]
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta

Á Íslandi er jörðin sífellt á hreyfingu. Hún breytist, rifnar og flæðir – oft utan þeirra marka sem mannlegt skipulag gerir ráð fyrir. Í slíkum aðstæðum verður ljóst að búseta er ekki varanlegt ástand, heldur stöðug aðlögun að öflum sem eru bæði skapandi og eyðandi. Reynslan er ekki einsdæmi. Í Japan, líkt og á Íslandi, […]
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025

„Tilnefningin Eyjamaður ársins er veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt sitt að mörkum og verið áberandi í samfélaginu hér í Eyjum. Tveir einstaklingar hlutu viðurkenninguna í ár, hjónin Hjalti Kristjánsson læknir og Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem eru Eyjafólk ársins að mati ritstjórnar Eyjafrétta,“ sagði Annika Vignisdóttir, aðstoðarritstjóri Eyjafrétta, við afhendingu Fréttapíramídanna föstudaginn 16. janúar […]
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu

Dagur sorgar í sögu Vestmannaeyja – Alls fórust 20 – Flestir tengdir Eyjum Þennan dag fyrir 75 árum, miðvikudaginn 31. janúar 1951 fórst flugvélin Glitfaxi í eigu Flugfélags Íslands í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli. Vélin var að koma frá Vestmannaeyjum og með henni fórust 20 manns, 17 farþegar og þriggja manna áhöfn. Tvær vélar í áætlunarflugi […]
Grjótharðir Glacier Guys í Eyjafréttum í dag

„Munurinn á Glacier Guys og Iceguys er að þeir hirða peninga á meðan við gefum peninga,“ segir Hanni harði, aðalsprautan í drengjabandinu Glacier Guys sem hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka túlkun á þekktum lögum. Ekki eru myndböndin síðri en allt er tekið upp í bíl fyrirtæk isins og sá harði að sjálfsögðu undir stýri. […]
Handverksmenn sýna í Einarsstofu

Í dag er sýning á verkum fjögurra handverksmanna í Einarsstofu í Safnahúsi. Fjölbreytt sýning og skemmtileg og þar er hægt kaupa fallega hluti. Þeir eru Kristmann Kristmannsson múrarameistari, séra Viðar Stefánsson prestur Landakirkju, Daníel Örn Virknir Jóhannesson gullsmiður og Viktor Þór Reynisson. Daníel Örn og Viktor Þór eru báðir fæddir og uppaldir í Vestmannaeyjum og fluttir […]
Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins

„Það voru bjartsýnir Eyjamenn sem horfðu fram á veginn við áramót 1972 til 1973. Sjórinn hafði þá verið gjafmildur og einnig kaupendur fisksins. Í nýrri og enn stærri landhelgi, þá nýstækkaðri úr 12 sjómílum í 50, höfðu Vestmanneyingar veitt vel. Árið 1972 áttu Vestmanneyingar 8,4% af útflutningsverðmæti landsmanna. Nóg atvinna var í plássinu og íbúarnir aldrei verið fleiri, eða […]