Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni

Hjónin Hjalti Kristjánsson læknir og Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur voru valin Eyjafólk ársins 2025 af Eyjafréttum. Viðurkenningin endurspeglar áratugalangt framlag þeirra til samfélagsins í Vestmannaeyjum. Saga þeirra er nátengd Eyjum, þar sem þau hafa sinnt heilbrigðisþjónustu, félagsmálum og uppbyggingu með einlægni, trú og umhyggju að leiðarljósi. Þau fluttu til Eyja árið 1985, upphaflega til skamms […]
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar

Fjölgreindarleikum 1. til 7. bekkjar GRV lauk í gær eftir tvo viðburðaríka og skemmtilega daga. Leikarnir eru byggðir á kenningum Howards Gardners um fjölgreindir, þar sem lögð er áhersla á að nemendur fái að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á ólíka styrkleika. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Grunnskóla Vestmannaeyja. Þar segir að nemendur […]
Fermingar á næsta leyti

Með hækkandi sól er komið að fermingum um allt land. Fermingardagar í Landakirkju eru laugardaginn 28. mars kl. 11.00, laugardaginn 11. apríl kl. 11.00, laugardaginn 18. apríl kl. 11.00 og sunnudaginn 24 maí kl. 11.00. Fermingarundirbúningur stendur því sem hæst. Hér má sjá hóp stúlkna sem fermast í vor ásamt séra Guðmundi Erni. Aftari röð, […]
Að loknu prófkjöri

Í gær lauk prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með frábærri þáttöku félagsmanna, en þegar yfir lauk höfðu 1178 manns mætt á kjörstað og greitt atkvæði. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk í oddvitasætið og geri allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir því trausti sem mér hefur verið falið. […]
Laxey rís í Vestmannaeyjum

Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, áskoranirnar og þá miklu vinnu sem liggur að baki. Þeir ræða jafnframt stöðu samfélagsins, ábyrgð stjórnvalda og mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og sérhæfð störf sem styrkja framtíð […]
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag

Talning og prófkjörsvaka eftir lokun kjörfundar í kvöld – Mikill þátttaka var í utankjörfundar atkvæðagreiðslu Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram í dag og stendur kjörfundur, í Ásgarði, frá kl. 14 til 22. Utankjörfundar atkvæðagreiðslu lauk í gærkvöldi og nýtti fjöldi kjósenda sér utankjörfundar atkvæðagreiðsluna en samtals kusu 494 utankjörfundar. Talning mun hefjast strax við lokun kjörfundar […]
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum

Í dag er prófkjör á lista sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Frambjóðendur eru 14 og komu þeir fram á fundi í Ásgarði síðasta laugardag þar sem þau kynntu sig og hvað þau standa fyrir. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þriðjudaginn 3. mars og lauk í gær og þá höfðu 494 greitt atkvæði á móti 150 fyrir kosningarnar […]
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu

Vélbáturinn Hellisey VE 503 fórst að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00. Með Hellisey VE fórust: Hjörtur R. Jónsson skipstjóri 25 ára, Pétur Sigurðsson, 1. vélstjóri 21 árs, Engilbert Eiðsson 2. vélstjóri, 19 ára, og Valur Smári Geirsson matsveinn 26 ára. Guðlaugur Friðþórsson stýrimaður, sem var 22 ára gamall, komst einn lífs af. Guðlaugur synti 5 til […]
Góð aðsókn á fundi Eyþórs

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins á föstudaginn getur verið ánægður með aðsókn á fundi sem hann boðaði til í Akóges í kvöld. Alls mættu milli 80 og 90 manns á fundinn þar sem Eyþór kynnti sig um leið og hann fór yfir helstu mál sem eru […]
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka

„Ísfélagið er á síðustu metrunum í loðnuveiðinni. Heimaey og Sigurður bíða löndunar í Eyjum og Suðurey er á leið til Þórshafnar. Við eigum eftir að veiða tæp 2000 tonn og klárast okkar kvóti vonandi fyrir helgi. Álsey verður á miðunum á morgun fimmtudag,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins í morgun. Sama er uppi á teningnum […]
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar

Röddin, undankeppni upplestrarkeppni 7. bekkjar GRV fór fram í Tónlistarskóla Vestmannaeyja í gær. Keppnin var mjög jöfn og voru dómarar lengi að komast að niðurstöðu. Að lokum tókst það. Fyrsta til þriðja sæti hrepptu þær Bríet Björk Hafþórsdóttir, Caritas Rós Tinnudóttir og Kolbrá Njálsdóttir. Í fjórða sæti lenti Guðbjörg Karlsdóttir og er hún varamaður lesaranna. […]
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu

Niðurstöður prófa í lesskilningi og stærðfræði eftir sveitarfélögum voru birtar í síðustu viku. Þar eru Vestmannaeyjar í tíunda sæti, sem verður að teljast ásættanleg niðurstaða. Lesfimipróf mæla hraða og nákvæmni í lestri og eru lögð fyrir þrisvar á ári. Niðurstöður frá árunum 2020 til 2025 sýna að hlutfall barna sem ná lágmarksviðmiði í lesfimi lækkaði frá 2020 til 2024. […]
Hljómey – Klara Einars mætir

Við kynnum til leiks Klöru Einars, upprennandi stórstjörnu. Klara gaf út lagið, Komin heim fyrir stuttu síðan, sem hefur ómað á öldum ljósvakans. Hún var á síðasta ári tilnefnd í flokknum nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum og hefur bæði komið fram á Kótilettunni og á Þjóðhátíð í Eyjum. Við vitum að það er margt geggjað í […]
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn

Það er að færast fjör í leikinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí nk. Fjórtán frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verða á föstudaginn kynntu sig á fjölmennum fundi í Ásgarði á laugardaginn. Áreiðanlegar heimildir herma að listi Eyjalistans sé nánast klár og verði kynntur á næstunni. Að honum standa Framsókn, Samfylking og Vinstri græn. Á […]
Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968

Vörubíl á leiðinni upp að Gagnfræðaskólanum. Búið er að ryðja leiðina og sést snjódýptin vel. Upp á börmunum sjást nemendur Gagnfræðaskólans. Mynd sem minnir okkur á að snjórinn í síðustu viku er ekkert einsdæmi í Vestmannaeyjum. Um þetta veður segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á bloggi sínu, Hungurdiskar og vitnar í Morgunblaðið sem segir frá miklu óveðri sem […]
Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum

Opinn kynningarfundur með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins var klukkan 11.00 í morgun í Ásgarði. Þar gafst 14 frambjóðendum, sjö körlum og sjö konum tækifæri á að kynna sig og þau mál sem þau leggja áherslu á. Aðsókn var góð, liðlega 100 manns sem er meiri fjöldi en sést hefur í Ásgarði, húsi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í einhver […]
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast

„Ég hef haft í nógu að snúast í janúar og febrúar. Í byrjun janúar tók ég ákvörðun um að láta tíu ára gamlan draum rætast. Að gefa út öll lögin mín nítján. Að vísu á geisladisk á þeim tíma sem nú hefur breyst í vínilútgáfu, og duga ekki minna en tvær plötur í verkið sem fengið […]
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hófst sl. þriðjudag og mun standa fram að kjördegi, sem er 13. mars. Utankjörfundar atkvæðagreiðslan fer fram í Ásgarði og verður opið alla virka daga kl. 16 – 18. Um næstu helgi verður opið bæði laugardag og sunnudag kl. 13 – 15 og fimmtudaginn 12. mars, sem er síðasti dagur utankjörfundar […]
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman á aukafundi í gærmorgun vegna stöðunnar sem komin er upp varðandi dýpkunarmálin í Landeyjahöfn. Daginn áður hafði Vegagerðin tilkynnti um bilun í vél við hliðarskrúfu í Álfsnesinu þegar það var við dýpkun í Landeyjahöfn aðfaranótt mánudags og þurfti skipið frá að hverfa. „Kom fram hjá Vegagerðinni að væri til vél í […]
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja

Það er mér að kenna að ekki var brugðist við í tíma að fá einn af föstu pennunum til að stinga niður penna. Það dæmist því á undirritaðan að bjarga því sem bjargað verður og tilefnið kom upp í fangið eftir sjónvarpsgláp á laugardagskvöldið síðasta. Byrjaði á öðrum þætti Stjörnubíós á RÚV sem Ari Eldjárn […]